Anna Jónsdóttir (Norður-Gerði)
Anna Jónsdóttir frá Tjörnum u. V.-Eyjafjöllum, vinnukona, verkakona fæddist 15. september 1883 og lést 15. nóvember 1962.
Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson bóndi, f. 24. mars 1857 í Túni í Eyjum, d. 15. apríl 1932, og kona hans Ólöf Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1852, d. 17. júlí 1930.
Anna var með foreldrum sínum í æsku, var hjá þeim á Tjörnum 1910, vinnukona á Tjörnum 1920.
Hún eignaðist barn með Gísla 1923 á Tjörnum.
Anna kom til Eyja 1924, var lausakona í Norður-Gerði 1927, vinnukona þar 1930, var lausakona á Kirkjubóli 1940, lausakona á Arnarnesi við Brekastíg 36 1945, verkakona þar 1949.
Anna lést 1962.
I. Barnsfaðir hennar var Gísla Þórðarson, frá Jaðri, verkamaður, f. 5. desember 1877, d. 7. nóvember 1943.
Barn þeirra:
1. Sigurður Ágúst Gíslason, sjómaður, f. 1. ágúist 1923 á Tjörnum, fórst með Helga á Faxaskeri 1950.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.