Andrea Guðbjörg Andrésdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Andrea Guðbjörg Andrésdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja fæddist 27. nóvember 1891 á Skúmsstöðum þar og lést 18. janúar 1954.
Foreldrar hennar voru Andrés Guðmundsson sjómaður, f. 13. júní 1849, d. 2. október 1905, og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. mars 1862, d. 28. ágúst 1946.

Andrea var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var tæpra 14 ára. Hún var hjú hjá móður sinni þar 1910.
Þau Guðni giftu sig 1916, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Garðhúsi á Eyrarbakka 1920, fluttu til Eyja 1926. Þau bjuggu við Hásteinsveg 15A 1930, síðar í Skálanesi við Vesturveg 13A.
Þau fluttu í Mosfellssveit 1940, bjuggu þar á Melstað.
Andrea lést 1954 og Guðni 1975.

I. Maður Andreu, (1916), var Guðni Sigurðsson verkamaður, f. 5. september 1890, d. 16. janúar 1975.
Börn þeirra:
1. Guðbjörg Svava Guðnadóttir húsfreyja, f. 5. mars 1917, d. 23. nóvember 2003.
2. Andrés Óskar Guðnason verkamaður, f. 9. september 1920, síðast í Gili í Mosfellsbæ, d. 30. júní 1986.
3. Sigurdór Rafn Guðnason verkamaður, f. 2. ágúst 1923, d. 2. nóvember 1944.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.