Þorvaldur Þorvaldsson (Vestra-Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þorvaldur Þorvaldsson.

Þorvaldur Þorvaldsson frá Vestra-Stakkagerði, sjómaður fæddist þar 13. mars 1948 og lést 2. mars 2009 á Sjúkrahúsi Akraness.
Foreldrar hans voru Hans Þorvaldur Sveinsson frá Hlíð í Norðfirði, sjómaður, f. 16. október 1912 á Strönd þar, drukknaði af vélbátnum Valþóri frá Siglufirði 22. júlí 1947, og kona hans Sigríður Einarsdóttir frá Staðarfelli, húsfreyja, f. þar 5. febrúar 1922, d. 9. júní 1989 í Reykjavík.

I. Barn Sigríðar og Vilhelms Ragnars Ingimundarsonar:
1. Gunnar Vilhelmsson múrari, f. 8. júlí 1939 á Staðarfelli. Kona hans Bjarnveig Gunnarsdóttir.
II. Börn Sigríðar og Hans Þorvaldar Sveinssonar:
2. Elín Þorvaldsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 11. október 1941 í Neskaupstað. Maður hennar Pálmi Eyþórsson, látinn.
3. Anna Sigurlaug Þorvaldsdóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 19. mars 1944 í Bár í Neskaupstað. Maður hennar Már Michelsen.
4. Sæunn Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Svíþjóð f. 8. maí 1946 í Bár í Neskaupstað. Fósturforeldrar Björn Levý Gestsson, f. 28. september 1889 og síðari kona hans Jóhanna Lárusdóttir, f. 15. maí 1013. Maður hennar Sigurður Þorsteinsson.
5. Þorvaldur Þorvaldsson sjómaður, f. 13. mars 1948 í Vestra-Stakkagerði, d. 2. mars 2009. Kona hans Sigríður Björk Þórisdóttir.
III. Barn Sigríðar og Baldurs Sigurlássonar:
6. Erla Kristinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ, f. 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, var ættleidd . Maður hennar Halldór Svavarsson, látinn.
IV. Börn Sigríðar og Jóns Sigurðar Jóhannessonar:
7. Halldór Sigurðsson bifvélavirki í Reykjavík, f. 19. desember 1953 í Vestra-Stakkagerði, d. 15. janúar 2018. Kona hans Eyrún Guðbjörnsdóttir.
8. Einar Sigurðsson bakarameistari í Þorlákshöfn, f. 26. mars 1955 í Vestra-Stakkagerði. Kona hans Arnheiður Svavarsdóttir.
9. Björk Sigurðardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, býr í Bláskógabyggð, f. 7. maí 1957 í Vestra-Stakkagerði. Fyrrum maður hennar Víðir Ástberg Pálsson.
10. Sæmundur Sigurðsson sendibílstjóri í Reykjavík, f. 5. febrúar 1960 í Eyjum. Kona hans Elín Halla Gunnarsdóttir, látin.
11. Sigurður Sigurðsson starfsmaður Volvoverksmiðjanna í Svíþjóð, f. 27. febrúar 1964, d. 5. ágúst 1990. Kona hans Sigurjóna Örlygsdóttir, látin.

Þorvaldur fæddist að föður sínum látnum.
Þorvaldur bjó með móður sinni í Vestra-Stakkagerði, síðar með henni og Sigurði Jóhannessyni þar og á Ásavegi 30.
Hann flutti með þeim til Reykjavíkur 1962, fluttist til Eyja og var sjómaður á togaranum Vestmannaey VE 54 frá 1978, fluttist í Borgarnes 1982, en kom aftur til Eyja 1987 og var þá háseti á frystitogaranum Vestmannaey og síðan á nýju Vestmannaey.
Þau Sigríður Björk giftu sig 1979, eignuðust tvö börn og Þorvaldur var fósturfaðir tveggja barna hennar frá fyrri samböndum.
Þorvaldur lést 2009 á Sjúkrahúsi Akraness.

I. Kona Þorvaldar, (28. desember 1979 á Borg á Mýrum), var Sigríður Björk Þórisdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 12. júlí 1951, d. 1. febrúar 2011. Foreldrar hennar voru Þórir Valdimar Ormsson trésmíðameistari í Borgarnesi, f. 28. desember 1927, d. 13. júlí 2002, og kona hans Júlíana Svanhildur Hálfdánardóttir húsfreyja, f. 4. maí 1932.
Börn þeirra:
1. Anna Heiðrún Þorvaldsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 28. september 1980 í Eyjum. Maður hennar Samúel Helgason.
2. Þorvaldur Ægir Þorvaldsson verkamaður, f. 24. september 1985 á Akranesi, ókvæntur.
Börn Sigríðar Bjarkar og fósturbörn Þorvaldar:
3. Svanhildur Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, f. 9. maí 1970 í Reykjavík. Maður hennar Jón Þór Þorvaldsson.
4. Þórir Valdimar Indriðason trésmiður, f. 8. mars 1974 á Akranesi. Kona hans María Hrund Guðmundsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 13. mars 2009. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.