Þorkell Þorkelsson (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorkell Þorkelsson frá Reykjavík, verkstjóri fæddist þar 22. mars 1946.
Foreldrar hans voru Þorkell Þorleifsson húsgagnabólstrari, f. 9. maí 1907, d. 14. maí 1991, og Lilja Sigurrós Eiðsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1913 á Klungurbrekku á Snæfellsnesi, d. 30. júní 2005.

Þorkell var verkamaður, fluttist til Eyja 1969, varð verkstjóri hjá Ísfélaginu.
Þau Petra giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Litlu-Heiði við Sólhlíð 21 við Gos 1973, í Njarðvíkum og á Selfossi á gostímanum. Þau sneru til Eyja um haustið, bjuggu á Hásteinsvegi 9 í fyrstu, í Háteinsblokkinni við Hásteinsveg í nokkur ár, en við Hraunslóð 3 frá 1977.
Petra lést 2002.

I. Kona Þorkels, (21. desember 1972), var Petra Magnúsdóttir frá Stóru-Heiði, húsfreyja, starfsmaður í mötuneyti Framhaldsskólans, f. 13. október 1945, d. 9. ágúst 2022.
Börn þeirra:
1. Ásmundur Eiður Þorkelsson matvælafræðingur, starfsmaður Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, f. 4. nóvember 1970. Fyrrum kona hans Harpa Dís Birgisdóttir. Kona hans Rannveig Ása Hjördísardóttir.
2. Þröstur Þorkelsson vélaverkfræðingur í Kópavogi, f. 3. október 1975. Kona hans Anna Guðrún Stefánsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.