Þorgeir Jónsson (Garðsauka)
Þorgeir Jónsson frá Efri-Úlfsstöðum í A.-Landeyjum, verkamaður fæddist þar 23. febrúar 1890 og lést 5. febrúar 1959.
Foreldrar hans voru Jón Þórðarson frá Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, bóndi á Efri-Úlfsstöðum, f. 31. október 1841, d. 15. apríl 1902, og kona hans Járngerður Árnadóttir frá Efraseli á Landi, húsfreyja, f. 28. október 1847, d. 23. desember 1914.
Börn Járngerðar og Jóns - í Eyjum:
1. Jóhanna Jónsdóttir verkakona í Klöpp, f. 9. júní 1870, d. 9. nóvember 1957.
2. Árni Jónsson útgerðarmaður í Garðsauka, f. 28. maí 1886, d. 25. apríl 1969.
3. Þorgeir Jónsson verkamaður, f. 23. febrúar 1890, d. 5. febrúar 1959.
Þorgeir var með foreldrum sínum, á Efri-Úlfsstöðum og Oddakoti í A.-Landeyjum.
Hann flutti til Eyja 1908, var fiskverkamaður í Ási við Kirkjuveg 49 1910, í Garðsauka við Vestmannabraut 27 1920, lausamaður þar 1930, verkamaður þar 1940 og enn 1949.
Þorgeir lést 1959, ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.