Þórhallur Einisson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórhallur Einisson kerfisfræðingur fæddist 19. júní 1973 á Höfn í Hornafirði.
Foreldrar hans Einir Ingólfsson, rak Ísjakann í Eyjum, síðar sendibílstjóri í Rvk, f. 22. desember 1954, og kona hans Sigríður Friðrikka Þórhallsdóttir húsfreyja, f. 16. mars 1956.

Börn Sigríðar og Einis:
1. Þórhallur Einisson, f. 19. júní 1973.
2. Elena Einisdóttir, f. 18. ágúst 1978.
3. Einir Einisson, f. 13. maí 1983.
4. Sigurður Einisson, f. 12. ágúst 1985.
5. Ingólfur Einisson , f. 29. janúar 1990.

Þau Hrund giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Hveragerði.

I. Kona Þórhalls er Hrund Guðmundsdóttir úr Garðabæ, húsfreyja, grafískur hönnuður, f. 16. apríl 1974. Foreldrar hennar Karólína Árnadóttir, f. 30. október 1947, og Guðmundur Hermann Salbergsson, f. 31. mars 1945, d. 28. maí 1993.
Börn þeirra:
1. Úlfur Þórhallsson, f. 2. janúar 2008.
2. Íris Þórhallsdóttir, f. 20. ágúst 2013.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.