Þórður Sveinsson (Engidal)
Þórður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður, Brekastíg 15C, (Engidal), f. 3. október 1902, d. 19. apríl 1967.
For.: Sveinn Þórðarson verkamaður á Gamla-Hrauni, Eyrarbakka, síðar í Varmadal í Eyjum, f. 24. júní 1868, d. 12. október 1936 og k.h. Sigríður Þorvaldsdóttir, f. 25. júlí 1870, d. 11. apríl 1926.
Börn Sveins og Sigríðar:
1. Helga Sveinsdóttir húsfreyja í Varmadal, f. 10. ágúst 1900, d. 2. ágúst 1874.
2. Þórður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður, f. 3. október 1902, d. 19. apríl 1967.
3. Valdimar Sveinsson sjómaður, f. 18. júní 1905, d. 26. janúar 1947.
4. Elías Sveinsson sjómaður, formaður, f. 8. september 1910, d. 13. júlí 1988.
Þórður var með foreldrum sínum í æsku. Hann fluttist til Eyja með föður sínum 1925.
Kona hans var Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1910, d. 6. mars 1993.
Börn þeirra:
1. Þorvarður Þórðarson, f. 13. janúar 1946;
2. Sigríður Sveinbjörg Þórðardóttir, f. 4. júní 1954.
Stjúpbörn (af fyrra hjónabandi Elínar):
3. Jórunn Erla, f. 2. nóvember 1929;
4. Hilmir, f. 26. september 1934.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Mbl. 1993.
- Blik 1961.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson.
- Manntal 1890 og 1901.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.