Óskar Elíasson (Hólagötu 37)
Óskar Elíasson lagermaður hjá Kjörís í Hveragerði fæddist 8. ágúst 1947 í Hellisholti.
Foreldrar hans Einar Elías Kristjánsson, sjómaður, verkamaður, f. 19. febrúar 1919, d. 4. janúar 2011, og kona hans Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, iðnverkakona, f. 29. júní 1924, d. 7. júní 2013.
Börn Klöru og Elíasar:
1. Ellý Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1944 í Hellisholti. Maður hennar Guðmundur Weihe Stefánsson.
2. Óskar Elíasson, f. 8. ágúst 1947 í Hellisholti. Kona hans Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir.
3. Guðný Sólveig Elíasdóttir húsfreyja, frístundaheimilis- og leikskólastarfsmaður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1949 í Hellisholti, d. 28. apríl 2015. Maður hennar var Sigtryggur Birgir Antonsson.
4. Hjörtur Kristján Elíasson, f. 10. janúar 1957 á Hólagötu 37. Kona hans var Kristín Ingólfsdóttir.
5. Ómar Elíasson, f. 28. nóvember 1960 að Hólagötu 37. Maður hennar: Hallfríður Steinunn Sigurðardóttir.
Þau Ingibjörg giftu sig, eignuðust þrjú börn í Eyjum. Þau búa í Hveragerði.
I. Kona Óskars er Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir úr Biskupstungum, húsfreyja, útibússtjóri Arion banka í Hveragerði, f. 6. október 1950. Foreldrar hennar Guðjón Hugberg Björnsson, f. 19. desember 1919, d. 1. ágúst 1997, og Sigríður María Konráðsdóttir, f. 9. september 1916, d. 16. mars 2003.
Börn þeirra:
1. Elías Óskarsson, f. 25. júní 1970.
2. María Óskarsdóttir, f. 3. júlí 1972.
3. Daði Óskarsson, f. 17. nóvember 1981.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Óskar og Ingibjörg.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.