Ómar Stefánsson (vélgæslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ómar Stefánsson, vélgæslumaður, málmiðnaðarmaður fæddist 24. janúar 1961 í Kornhól við Strandveg 1.
Foreldrar hans Stefán Einarsson, verkamaður, Baadermaður, verkstjóri, f. 6. júlí 1931, d. 12. febrúar 1980, og kona hans Erna Fannberg Fannbergsdóttir, frá Ólafsfirði, húsfreyja, ræstitæknir, f. 23. júlí 1938.

Börn Ernu og Stefáns:
1. Valdís Stefánsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018. Maður hennar Svavar Garðarsson.
2. Fannberg Einar Stefánsson sjómaður, vélstjóri, f. 30. júlí 1957 á Heiði, d. 6. janúar 2014. Kona hans Jólín Lilja Brynjólfsdóttir.
3. Ómar Stefánsson vélgæslumaður, f. 24. janúar 1961 í Kornhól við Strandveg 1. Kona hans Sigfríður Björg Ingadóttir.
4. Heiðar Stefánsson sjómaður, f. 12. ágúst 1963 á Ólafsfirði, d. 3. júlí 2020. Sambúðarkona hans Birna Sigrún Haraldsdóttir.
5. Erlingur Valur Stefánsson, f. 17. febrúar 1967. Fyrrum kona hans Hrefna Hrund Eronsdóttir.
6. Linda Mary Stefánsdóttir, f. 21. maí 1972. Maður hennar Magnús Elvar Viktorsson.

Þau Sigfríð Björg giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Hásteinsveg 32.

I. Kona Ómars er Sigfríð Björg Ingadóttir, húsfreyja, f. 24. desember 1967.
Börn þeirra:
1. Guðný Ósk Ómarsdóttir, f. 3. júní 1993.
2. Linda Björg Ómarsdóttir, f. 14. nóvember 1996.
3. Eríka Ýr Ómarsdóttir, f. 26. október 2001.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.