Ólafur Haukur Kristinsson (Reyni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ólafur Haukur Kristinsson)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Haukur Kristinsson frá Reyni við Bárustíg 5, skrifstofumaður fæddist 14. mars 1937 í Neskaupstað.
Foreldrar hans voru Kristinn Ólafsson lögfræðingur, bæjarstjóri, bæjarfógeti, fulltrúi sýslumanns, f. 21. nóvember 1897 í Reykjavík, d. 18. október 1959, og kona hans Jóna Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 29. desember 1907 á Vegamótum, d., 4. október 2005

Börn Jónu og Kristins:
1. Ása Sigríður Kristinsdóttir Gudnason, húsfreyja í Danmörku, f. 14. febrúar 1930, d. 16. apríl 2019. Maður hennar Christian H. Gudnason prófessor.
2. Birgir Kristinsson símvirki, vélstjóri í Reykjavík, f. 13. maí 1931, d. 13. mars 2018. Kona hans Margrét Jóhannsdóttir.
3. Edda Kristinsdóttir húsfreyja, f. 13. apríl 1933. Maður hennar Theódór Diðriksson, látinn.
4. Ólafur Haukur Kristinsson skrifstofumaður í Reykjavík, síðan í Frakklandi, f. 14. mars 1937. Fyrri kona hans Eirný Sæmundsdóttir, látin. Síðari kona hans Veronique Pasquier.
5. Kristín Kristinsdóttir kennari, f. 1. maí 1946. Fyrrum maður hennar Einar H. Guðmundsson kennari.

Ólafur var með foreldrum sínum í æsku, flutti nýfæddur með þeim frá Norðfirði til Eyja 1937 og til Hafnarfjarðar 1944.
Ólafur varð skrifstofumaður.
Þau Eirný giftu sig 1965, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Veronique giftu sig, eiga tvö börn. Þau búa í Frakklandi.

I. Kona Ólafs Hauks, (30. október 1965, skildu), var Eirný Guðmunda Sæmundsdóttir húsfreyja, tannsmíðameistari, f. 25. nóvember 1928 í Ytri-Hjarðardal í Önundarfirði, d. 11. janúar 2012. Foreldrar hennar voru Sæmundur Þorbergur Jóhannesson bóndi, f. 2. mars 1883, d. 6. júlí 1954, og kona hans Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1891, d. 14. apríl 1979.
Börn þeirra:
1. Guðlaug Ólafsdóttir öryrki, f. 16. apríl 1966.
2. Kristinn Ólafsson, rekur eigið fyrirtæki í Noregi, f. 3. janúar 1968. Fyrrum kona hans Cathrin Wiman.
Sonur Eirnýjar og Magnúsar Ásmundssonar:
3. Sæmundur Þorbergur Magnússon vélstjóri, f. 14. janúar 1956.

II. Kona Ólafs Hauks er Veronique Pasquier ritari.
Börn þeirra:
4. Kári Ólafsson Kristinsson.
5. Marie Ólafsdóttir Kristinsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kristinn Ólafsson.
  • Morgunblaðið 20. janúar 2012. Minning Eirnýjar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.