Ísleifur Arnarson
Ísleifur Arnarson fisktæknir, með diploma í opinberri stjórnsýslu, sérfræðingur hjá Matvælastofnun, fæddist 14. febrúar 1960.
Foreldrar hans Örn Friðgeirsson frá Stöðvarfirði, skipstjóri, fiskimatsmaður, f. 24. apríl 1931, d. 30. ágúst 2006, og kona hans Hallbera Sigríður Ísleifsdóttir frá Ytri-Sólheimum í Mýrdal, húsfreyja, verkakona, f. 13. maí 1934, d. 13. september 2022.
Börn Hallberu og Arnar:
1. Lilja Arnardóttir, f. 26. maí 1958. Maður hennar Hróbjartur Ægir Óskarsson.
2. Ísleifur Arnarson, f. 14. febrúar 1960. Fyrrum kona hans Sigríður Stefánsdóttir. Kona hans Patricia Marie Bono.
3. Elsa Arnardóttir, f. 30. desember 1961.
4. Erlingur Örn Arnarson, f. 23. júlí 1969. Barnsmóðir hans Unnur Sturlaugsdóttir.
Þau Sigríður giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
Þau Patricia Marie giftu sig, hafa ekki eignast börn saman.
I. Fyrrum kona Ísleifs er Sigríður Stefánsdóttir frá Akureyri, lögfræðingur, f. 14. maí 1961, d. 13. maí 2007. Foreldrar hennar Jóhanna Stefánsdóttir, f. 14. mars 1934, og Stefán Stefánsson, f. 29. febrúar 1932, d. 7. júní 2009.
II. Kona Ísleifs er Patricia Marie Bono frá Boston, f. 25. febrúar 1964.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Ísleifur.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.