Ásta Salný Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Salný Sigurðardóttir, húsfreyja, förðunarmeistari fæddist 3. mars 1975 í Eyjum.
Foreldrar hennar Sigurður Kristinn Ragnarsson, húsasmíðameistari, f. 29. desember 1951, og kona hans Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður, f. 30. júlí 1953, d. 13. september 2004.

Börn Halldóru og Sigurðar:
1. Ásta Salný Sigurðardóttir, förðunarmeistari, f. 3. mars 1975 í Eyjum. Sambúðarmaður hennar Viðar Snær Sigurðsson.
2. Sonja Erna Sigurðardóttir, 11. maí 1979 í Eyjum. Maður hennar Tómas Guðmundsson.

Þau Viðar Snær hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau búa Hafnarfirði.

I. Sambúðarmaður Ástu Salnýjar er Viðar Snær Sigurðsson, f. 8. júlí 1972. Foreldrar hans Sigurður Árnason, f. 26. desember 1919, d. 25. apríl 1979, og Kristín Halldóra Þorsteinsdóttir, f. 16. janúar 1943.
Barn þeirra:
1. Alexandra Rán Viðarsdóttir, f. 16. febrúar 1999.
2. Viktoría Sara Viðarsdóttir, f. 26. mars 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.