Ásmundur Friðriksson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ásmundur.
Ásmundur á Löndum og Matthildur systir hans.

Ásmundur Friðriksson fæddist 31. ágúst 1909 og lést 17. nóvember 1963. Ásmundur var sonur Friðriks Svipmundssonar og Elínar Þorsteinsdóttur. Þau bjuggu nær allan sinn búskap að Löndum í Vestmannaeyjum. Árið 1934 kvæntist Ásmundur fyrri konu sinni Elísu Pálsdóttur og eignuðust þau tvö börn, Friðrik og Elínu Hólmfríði. Hún lést árið 1945. Síðari kona Ásmundar var Þórhalla Friðriksdóttir og eignuðust þau tvö börn, Ásu og Árna.

Ásmundur fór að loknu barnaskólanámi í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist gagnfræðingur með góðri einkunn. Hann tók hið meira fiskimannapróf frá Stýrimannaskólanum í Rvk 1933. Eftir það fór hann á sjóinn og var meðal annars skipstjóri á Friðþjófi VE 98 1935, Sjöstjörnunni VE 92 og skipstjóri á m.s. Helga VE 333 um skeið á stríðsárunum, með togarana Elliðaey og Keflvíking frá 1946-1954.
Eftir að hann kom í land þá gerðist hann forstjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur og stofnaði síðar eigið fyrirtæki, Söltun hf. Ásmundur lést á heimili sínu í Keflavík, aðeins 54 ára gamall.

Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Ásmund:

Ásmundur frá öllum ber
orðstír gætni og dáða
á Sjöstjörnunni um votan ver
völd hans gæfu ráða.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Ásmund:

Bylgjur þegar brýtur fley
brims í sköflum þöndum,
heppinn siglir Elliðaey
Ásmundur á Löndum.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Ásmundur Friðriksson

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • G.S. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Ægisútgáfan. Reykjavík 1979.