Árni Sigurðsson (Nýborg)
Fara í flakk
Fara í leit
Árni Sigurður Gísli Sigurðsson frá Nýborg fæddist 21. apríl 1875 í Steinasókn u. Eyjafjöllum og lést 1. júní 1913 í Kaupmannahöfn.
Foreldrar hans voru Sigurður Sveinsson smiður og athafnamaður í Nýborg, þá ókvæntur smiður á Rauðafelli, og Guðrún Árnadóttir, þá vinnukona í Núpakoti, síðar bústýra Sigurðar og að lokum húsfreyja í Götu.
Árni var hjá foreldrum og síðan föður sínum í Nýborg. Hann var þar 1880 og 1890, var í Reykjavík 1901, fór síðan til náms í Kaupmannahöfn og lést þar 1913.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurður Guðmundsson.
- Þorgils Jónasson.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.