Árný Ingibergsdóttir (Sandfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árný Ingibjörg Ingibergsdóttir, vistmaður á Kópavogshæli fæddist 20. júní 1943 og lést 1. maí 1989.
Foreldrar hennar voru Ingibergur Gíslason frá Sjávargötu á Eyrarbakka, skipstjóri, f. 16. janúar 1897, d. 15. janúar 1987, og kona hans Árný Guðjónsdóttir frá Sandfelli, húsfreyja, f. þar 8. september 1906, d. 10. ágúst 1943.
Fósturmóðir Árnýjar og síðari kona Ingibergs var Lovísa Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. september 1910, d. 29. maí 2000.

Börn Árnýjar og Ingibergs:
1. Þorvaldur Ingibergsson, f. 7. október 1926 á Sandfelli, d. 15. ágúst 1927.
2. Guðjón Ingibergsson sjómaður, f. 25. september 1928 á Þorvaldseyri, d. 16. nóvember 1989.
3. Jónína Margrét Ingibergsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 5. júní 1931 á Grímsstöðum, d. 8. desember 2014.
4. Matthías Ingibergsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 22. janúar 1933 á Grímsstöðum, d. 31. október 2006.
5. Inga Hallgerður Ingibergsdóttir, f. 21. maí 1937 í Hvammi, síðast í Hrísey, d. 12. desember 1990.
6. Árný Ingibjörg Ingibergsdóttir, f. 20. júní 1943 á Sandfelli, d. 2. maí 1989.
Börn Ingibergs og Lovísu Guðrúnar:
7. Guðrún Ingibergsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1944 á Sandfelli.
8. Guðmunda Ingibergsdóttir húsfreyja, f. 2. september 1948 á Sandfelli.

Árný var vanheil og var vistuð á Kópavogshæli.
Hún lést 1989, var jarðsett í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.