Ármann Halldór Óskarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ármann Halldór Óskarsson.

Ármann Halldór Björnsson Óskarsson, vélstjóri, framkvæmdastjóri Áhaldaleigunnar í Eyjum, fæddist 20. apríl 1941 í Hruna og lést 23. nóvember 1984.
Foreldrar hans Óskar Elías Björnsson, sjómaður, bifreiðastjóri, f. 27. október 1917, d. 4. desember 1989, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 22. júní 1922, d. 22. september 2004.

Börn Sigríðar og Óskars:
1. Ármann Halldór Óskarsson vélstjóri, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 20. apríl 1941 í Hruna, d. 23. nóvember 1984.
2. Guðrún Óskarsdóttir, f. 26. maí 1945 á Staðarhól.
3. Margrét Sigríður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. maí 1948 á Faxastíg 5, d. 24. apríl 2016.
4. Óskar Elías Óskarsson, f. 17. apríl 1955 á Sjúkrahúsinu.
5. Hannes Kristinn Óskarsson, f. 19. desember 1957 á Faxastíg 5, d. 21. janúar 1982.
6. Guðný Óskarsdóttir, f. 29. mars 1959 að Faxastíg 5.
7. Ármey Óskarsdóttir, f. 20. ágúst 1960 á Sjúkrahúsinu.

Ármann var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.