Ágúst Jónsson (Varmahlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst og kona hans Pálína, Lilja systir hennar og Fanney Ármannsdóttir.

Ágúst Jónsson, Varmahlíð, fæddist 4. ágúst 1890 í V-Landeyjum og lést 1. desember 1969 í Vestmannaeyjum. Ágúst fluttist til Vestmannaeyja árið 1910. Áratug síðar hóf hann formennsku á Siggu sem hann átti sjálfur. Síðar var hann með Haffrú og Auði.
Hann var síðan lengi trésmíðameistari.

Eiginkona hans var Pálína Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1895. Börn þeirra:
1. Rut Ágústsdóttir, f. 13. september 1920, d. 13. september 1989.
2. Auður Ágústsdóttir, f. 24. júní 1922, d. 6. júlí 1963.
3. Sara Ágústsdóttir, f. 25. mars 1925, d. 16. janúar 1948.
4. Marta Ágústsdóttir, f. 29. júní 1928.
5. Hafsteinn Ágústsson, f. 1. nóvember 1929, d. 21.apríl 2016.
6. Lárus Ágústsson, f. 25. júlí 1933, d. 29. apríl 2014.
7. Þyrí Ágústsdóttir, f. 7. desember 1934, d. 10. desember 1971.
8. Arnar Ágústsson, f. 13. september 1936, d. 12. janúar 1997.
9. Eiríka Ágústsdóttir, f. 3. júní 1938, d. 29. nóvember 1943.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Valgeir Sigurðsson. Rangvellingabók. Hella: Rangárhreppur, 1952.
  • Hafsteinn Ágústsson.