Ágúst Halldórsson (viðskiptastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Halldórsson húsasmíðameistari, viðskiptastjóri hjá N1, fæddist 12. júlí 1954.
Foreldrar hans Guðbjörg Sigríður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 29. desember 1921, d. 1. maí 2012, og Halldór Ágústsson sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 26. október 1926, drukknaði 9. janúar 1957.

Börn Guðbjargar og Halldórs:
1. Guðríður Halldórsdóttir, f. 16. mars 1953. Maður hennar Emil Theodór Guðjónsson.
2. Ágúst Halldórsson, f. 12. júlí 1954. Kona hans Hólmfríður A. Stefánsdóttir.
3. Björg Halldórsdóttir, f. 20. júlí 1955. Maður hennar Guðsteinn Ingimarsson.

Þau Hólmfríður giftu sig, eignuðust tvö börn og Hólmfríður eignaðist eitt barn áður. Þau búa við Gerðisbraut 4.

I. Kona Ágústs er Hólmfríður Arnar Stefánsdóttir húsfreyja, f. 1. júlí 1956. Foreldrar hennar Stefán Hlynur Hörgdal Þorsteinsson, f. 28. maí 1924, d. 6. desember 1985, og Unnur Margrét Guðmundsdóttir, f. 13. maí 1929, d. 20. september 1987.
Börn þeirra:
1. Sara Björg Ágústsdóttir, f. 11. maí 1984.
2. Theodóra Ágústsdóttir, f. 16. desember 1987.
Barn Hólmfríðar:
3. Arnbjörg Harðardóttir, f. 25. febrúar 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.