Við höldum þjóðhátíð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 16:21 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 16:21 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Við höldum þjóðhátíð,þrátt fyrir böl og stríð,
við höldum þjóðhátíð í dag.
Við gleymum öskuhríð, gerumst ljúf og blíð,
við syngjum saman lítið lag.
Allt okkar líf er þessum eyjum bundið
áfram við höldum með lífstíðarsundið,
svo glöð og kát.
Á Breiðabakkanum í bratta slakkanum,
brann eldur næturstund.
Þau áttu von og trú og urðu herra og frú,
þau áttu bjarta og hressa lund.
Lag og texti: Árni Johensen