„Steinunn Þorsteinsdóttir (Kastala)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 22: Lína 22:
[[Flokkur: Íbúar á Gjábakka]]
[[Flokkur: Íbúar á Gjábakka]]
[[Flokkur: Vesturfarar]]
[[Flokkur: Vesturfarar]]
[[Flokkur: Mormónar]]

Útgáfa síðunnar 31. janúar 2016 kl. 17:14

Steinunn Þorsteinsdóttir vinnukona frá Kastala fæddist 22. september 1862 og lést 7. febrúar 1927 í Vesturheimi.

Foreldrar hennar voru Þorsteinn Jónsson tómthúsmaður og ekkill í Kastala, f. 27. júlí 1833, drukknaði 1863, og Guðrún Jónsdóttir, þá í Kastala, ekkja eftir Hjálmar Filippusson, f. 21. apríl 1825, d. 2. júní 1890.

Steinunn var með móður sinni í Kastala 1862, niðursetningur ásamt móður sinni hjá Arndísi Jónsdóttur þar 1863, niðursetningur þar 1864 og enn 1870.
Hún var vinnukona í Jónshúsi 1880 og við fæðingu Sigmundar 1883. Hún var á Gjábakka við brottför til Vesturheims 1886.

I. Barnsfaðir hennar var Gísli Gíslason Brynjólfssonar, en hann var þá í Jónshúsi, f. 1847, d. 1. desember 1910.
Barn þeirra var
1. Sigmundur Gíslason, f. 29. október 1883, fór til Vesturheims, d. 31. mars 1965.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.