„Stefán Jóhannes Þorláksson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Stefán Jóhannes Þorláksson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Stefán Jóhannes Þorláksson''' verkamaður fæddist 30.október 1843 á Kallsstöðum í Berufirði, S-Múl.<br>
'''Stefán Jóhannes Þorláksson''' verkamaður fæddist 30. október 1843 á Kallsstöðum í Berufirði, S-Múl.<br>
Foreldrar hans voru Þorlákur Vigfússon vinnumaður, síðar bóndi, f. 1804, og [[Steinunn Oddsdóttir]] vinnukona á Kallsstöðum, síðar húsfreyja á Hofi í Öræfum og [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], f. 22. janúar 1824, d. 12. febrúar 1906.
Foreldrar hans voru Þorlákur Vigfússon vinnumaður, síðar bóndi, f. 1804, og [[Steinunn Oddsdóttir]] vinnukona á Kallsstöðum, síðar húsfreyja á Hofi í Öræfum og [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], f. 22. janúar 1824, d. 12. febrúar 1906.



Útgáfa síðunnar 8. september 2014 kl. 22:14

Stefán Jóhannes Þorláksson verkamaður fæddist 30. október 1843 á Kallsstöðum í Berufirði, S-Múl.
Foreldrar hans voru Þorlákur Vigfússon vinnumaður, síðar bóndi, f. 1804, og Steinunn Oddsdóttir vinnukona á Kallsstöðum, síðar húsfreyja á Hofi í Öræfum og Oddsstöðum, f. 22. janúar 1824, d. 12. febrúar 1906.

Hálfsystkini Stefáns Jóhannesar í Eyjum, (sammædd), voru:
1. Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen húsfreyja í Frydendal, f. 4. júní 1855, d. 30. ágúst 1930.
2. Sveinn Árnason Skaftfell, f. 6. október 1859. Hann fluttist til Vesturheims 1900.
3. María Árnadóttir, f. 8. maí 1861, d. 24. janúar 1878.
4. Oddur Árnason, f. 30. júní 1865, d. 3. maí 1896.
5. Þorgerður Árnadóttir, síðar í Vesturheimi, - tvíburi við Odd, f. 30. júní 1865.

Stefán Jóhannes var með foreldrum sínum, vinnufólki á Kallsstöðum í Berufirði 1845, með móður sinni, Árna stjúpa sínum og hálfsystkinum sínum Önnu og Oddi (eldri) í Papey 1855.
Hann kom að Landlyst 1861, vinnudrengur frá Breiðdal í S-Múl., var í Landlyst 1862, var vinnumaður í Juliushaab 1863 og enn 1867, í Godthaab 1868. 1869 var hann 24 ára vinnumaður í Garðinum. Þar var Jóhanna Magnúsdóttir 20 ára vinnukona. 1870 var hann vinnumaður í Kornhól. Þau Jóhanna giftust 1871, og 1872 og 1873 var Stefán Jóhannes húsmaður á Vilborgarstöðum hjá Oddnýju tengdamóður sinni.
Þau Jóhanna fóru til Kaupmannahafnar 1874 með Magnús og Steinunni, ásamt Oddnýju móður Jóhönnu. Þau bjuggu þar í 5 ár, komu að Oddeyri á Akureyri 1879, hann skráður tómthúsmaður.
Hann var búandi verkamaður, sjómaður á Akureyri 1880, var á Seyðisfirði 1884, fór til Vesturheims 1887.

Kona Stefáns Jóhannesar, (14. maí 1871), var Jóhanna Magnúsdóttir frá Vilborgarstöðum, f. 1850.
Börn þeirra hér:
1. Magnús Stefánsson, f. 25. febrúar 1872.
2. Steinunn Stefánsdóttir, f. 2. desember 1873.
3. Karítas Stefánsdóttir, f. 1876, d. 29. júlí 1882.
4. Fanney Stefánsdóttir, f. 10. september 1880, d. 18. apríl 1881.
5. Þorlákur Stefánsson, f. 18. febrúar 1884.
6. Jóhannes Stefánsson, f. 27. júní 1888.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.