Sveinn Árnason (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Árnason Skaftfell á Oddsstöðum fæddist 6. október 1859 á Hofi í Öræfum, d. í maí 1951.
Foreldrar hans voru Árni Þórarinsson bóndi, f. 14. ágúst 1825, d. 17. apríl 1917, og kona hans Steinunn Oddsdóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1824, d. 12. febrúar 1906.

Systkini Sveins í Eyjum voru:
1. Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen húsfreyja í Frydendal, f. 4. júní 1855, d. 30. ágúst 1930.
2. María Árnadóttir, f. 8. maí 1861, d. 24. janúar 1878.
3. Þorgerður Árnadóttir, síðar í Vesturheimi, - tvíburi við Odd, f. 30. júní 1865.
4. Oddur Árnason, f. 30. júní 1865, d. 3. maí 1896.
Hálfbróðir Sveins, (sammæddur), var
5. Stefán Jóhannes Þorláksson, f. 30. október 1844.

Sveinn var með foreldrum sínum á Hofi í Öræfum 1860, var fósturbarn hjá Vilborgu föðursystur sinni þar 1870.
Hann fluttist frá Tvískerjum að Oddsstöðum 1877, var vinnumaður í Nýborg 1880.
Sveinn lærði trésmíðar í Eyjum, fluttist úr Eyjum að Káragerði 1882, fór síðan til Djúpavogs og stundaði iðnina þar og á Fáskrúðsfirði.
Hann fluttist til Vesturheims 1900 frá Búðum í Fáskrúðsfirði, bjó í Selkirk í Manitoba-fylki í Kanada.
Hann kallaði sig Svein Skaftfell.

I. Barnsmóðir Sveins var Herdís Magnúsdóttir vinnukona í Nýborg, f. 20. desember 1839, d. 8. janúar 1914.
Barn þeirra var
1. Guðjón Sveinsson, f. 20. mars 1881, d. 9. júní 1881 úr barnaveikindum.

II. Kona hans, (1885), var Elín Katrín Jónsdóttir, f. 4. desember 1863 á Steinaborg í Berufirði, húsfreyja í Selkirk. Foreldrar hennar Jón (yngri) Jónsson skipstjóri og bóndi í Núpshjáleigu, f. 1831, d. 1865, og kona hans Elísabet Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1836.
Börn þeirra:
2. Jóhanna Elísabet Sveinsdóttir Goodman húsfreyja í Selkirk, f. 20. janúar 1886 á Djúpavogi. Maður hennar Vilhjálmur Guðmundsson Goodman, f. 7. nóvember 1877 á Vilborgarstöðum, d. 31. október 1923.
3. Steinunn Sveinsdóttir Austmann vinnukona, f. 1887 í Þingmúlasókn, ógift.
4. Þóra Sveinsdóttir Austmann húsfreyja í Selkirk. Maður hennar Sigurgeir Jónsson Austmann. Maður hennar Garry Isfeld.
5. Steindór Árni Sveinsson vinnumaður í Hofsnesi í Skaft., f. 17. október 1889, d. 27. október 1960, ókvæntur.
6. Kristbjörg Sveinsdóttir Skaftfell húsfreyja í Portage la Prairie í Manitoba, f. 27. maí 1892, d. 1976 í Winnipeg. Maður hennar Haraldur Sigurðsson.
7. Sigríður Sveinsdóttir Skaftfell í Winnipeg, f. 28. desember 1894 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 7. júní 1918 í Winnipeg.
8. Emma Sigurbjörg Sveinsdóttir Skaftfell húsfreyja í Silver Bay í Manitoba, f. 20. júní 1898, d. 25. september 1975 í Gimli í Manitoba. Maður hennar Jón Thorlacius.
9. Jónína Sveinsdóttir Skaftfell kennari í Manitoba.
10. Einar Sveinsson Skaftfell fiskimaður í Westbourne, f. 1. febrúar 1907 í Westbourne. Kona hans Ruth Amelia Davey frá Skotlandi, d. 1962. Kona Lillias Stewart, d. 1970. Kona Kay Single.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.