Stefán Helgason (útgerðarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2012 kl. 12:20 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2012 kl. 12:20 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stefán

Stefán Helgason fæddist 16. maí 1929 í Einbúa við Bakkastíg og lést 30. apríl 2000. Foreldrar hans voru Guðrún Stefánsdóttir og Helgi Benediktsson. Stefán var kvæntur Sigríði Ingibjörgu Bjarnadóttur og áttu þau tvær dætur, Guðrúnu og Sigurbjörgu.

Stefán, eða Denni eins og hann var ætíð kallaður, vann lengi við að sjá um útgerð föður síns en um tíma gerði Helgi út átta fiskiskip frá Vestmannaeyjum. Auk þess var fyrirtækið umsvifamikið í verslun, hótelrekstri og landbúnaði. Eftir að fyrir fyrirtækið dró saman seglin á sjöunda áratug 20. aldar hóf Denni ökukennslu sem hann stundaði samhliða öðrum störfum, m.a. hjá Bifreiðaeftirlitinu og hjá Kertaverksmiðjunni Heimaey.

Myndir


Heimildir