Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Bjarganir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 14:51 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 14:51 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarganir Sunnudaginn 14 okt. 1984 sökk trillubáturinn Ísak VE 3 skammt norðvestur af Faxaskeri. Tveir menn voru á bátnum þeir Svavar Sigmundsson og Jóhannes Óskarsson. Skarfur GK 666 bjargaði þeim félögum. Skipstjóri á Skarf er Guðjón Einarsson Mánagerði l. Grindavík. 2. mars s.l. vildi það óhapp til um borð í Bylgju VE 75 að Guðmundur Þ. Tómasson fór útbyrðis með færi netatrossu. Gestur Gunnbjörnsson stakk sér útbyrðis og bjargaði honum.