Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Bjarganir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarganir Sunnudaginn 14 okt. 1984 sökk trillubáturinn Ísak VE 3 skammt norðvestur af Faxaskeri. Tveir menn voru á bátnum þeir Svavar Sigmundsson og Jóhannes Óskarsson. Skarfur GK 666 bjargaði þeim félögum. Skipstjóri á Skarf er Guðjón Einarsson Mánagerði l. Grindavík. 2. mars s.l. vildi það óhapp til um borð í Bylgju VE 75Guðmundur Þ. Tómasson fór útbyrðis með færi netatrossu. Gestur Gunnbjörnsson stakk sér útbyrðis og bjargaði honum.

Sæbjörg VE 56 strandaði við Stokksnes í desember 1984. Myndin er tekin vip heimkomu áhafnarinnar. T.f.v.: Ólafur Þórðarson, Kristbergur Einarsson. Theodór Ólafsson, Sigmundur Sigurðsson, Stefán G. Gunnarsson, Þórir Andrésson, Óðinn Hallgrímsson. Hafþór Theodórsson og Þorsteinn Árnason.
Svavar og Jóhannes