Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Bjarganir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 14:49 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2017 kl. 14:49 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Bjarganir Sunnudaginn 14 okt. 1984 sökk trillubáturinn Ísak VE 3 skammt norðvestur af Faxaskeri. Tveir menn voru á bátnum þeir Svavar Sigmundsson og Jóhannes Óskarsson. Skarf...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarganir Sunnudaginn 14 okt. 1984 sökk trillubáturinn Ísak VE 3 skammt norðvestur af Faxaskeri. Tveir menn voru á bátnum þeir Svavar Sigmundsson og Jóhannes Óskarsson. Skarfur GK 666 bjargaði þeim félögum. Skipstjóri á Skarf er Guðjón Einarsson Mánagerði l. Grindavík. 2. mars s.l. vildi það óhapp til um borð í Bylgju VE 75 að Guðmundur Þ. Tómasson fór útbyrðis með færi netatrossu. Gestur Gunnbjörnsson stakk sér útbyrðis og bjargaði honum.