Sigurður Gíslason (Helli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. október 2016 kl. 20:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. október 2016 kl. 20:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Gíslason verkamaður, síðar múrarameistari í Helli fæddist 8. júní 1885 í Miðhjáleigu og lést 6. júní 1951.
Foreldrar hans voru Gísli Arnbjörnsson ráðsmaður í Miðhjáleigu í Fljótshlíð, f. 1854, d. 8. nóvember 1902, og ekkjan og húsfreyjan þar Guðrún Jónsdóttir,

Sigurður fluttist úr V-Landeyjum til Eyja 1910, var sjómaður í Laufási til 1913.
Þau Oktavía Guðný giftu sig 1917 og bjuggu í Hraungerði 1917-1923.
Þau reistu húsið Helli 1923 og bjuggu þar síðla árs 1923 og síðan.
Þau eignuðust þar 3 börn.
Sigurður var verkamaður, vann við múrverk og öðlaðist múrararéttindi.

Kona Sigurðar, (24. nóvember 1917), var Oktavía Guðný Guðmundsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja í Helli f. 5. október 1893, d. 22. október 1980.
Börn þeirra voru:
1. Andvana stúlka, f. 16. ágúst 1921 í Hraungerði.
2. Elsa Dóróthea Sigurðardóttir á Húsavík, f. 4. nóvember 1922, d. 7. júní 1997.
3. Oddný Guðrún Sigurðardóttir í Hafnarfirði , f. 28. ágúst 1927, d. 26. febrúar 1997.
4. Guðmundur Vignir Sigurðsson í Eyjum, f. 20. desember 1933, d. 5. nóvember 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.