„Sigrún Elsa Smáradóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:
Sigrún Elsa er matvælafræðingur að mennt og hefur MBA gráðu í viðskiptastjórnun. Sigrún hefur starfað sem markaðsstjóri hjá Austurbakka sem nú er Icepharma í um áratug. Þó tók hún sér leyfi frá störfum fyrir alþingiskosningarnar 2003 þegar hún starfaði sem pólitískur aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Kjörtímabilið 2002-2006 er þriðja kjörtímabil Sigrúnar Elsu sem varaborgarfulltrúa í Reykjavík. Fyrstu tvö kjörtímabilin sat hún fyrir Reykjavíkurlistann og það þriðja fyrir Samfylkinguna. Á meðan Reykjavíkurlistinn var við völd í Reykjavík var Sigrún Elsa varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni og sat hún einnig í menntaráði Reykjavíkur, svo fátt eitt sé nefnt.

[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Skrifstofufólk]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Nýjabæjarbraut]]

Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 11:47

Sigrún Elsa Smáradóttir er fædd 27. nóvember 1972. Foreldrar hennar eru Ragnhildur Brynjólfsdóttir og Smári Grímsson rafvirki. Á meðan þau hjón voru búsett í Vestmannaeyjum bjuggu þau lengi vel á Nýjabæjarbraut 1. Starfaði Ragnhildur meðal annars sem skólaritari í Hamarsskóla og Smári sem rafvirki í Vinnslustöðinni. Sigrún Elsa á yngri tvíburasystur, Steinunni Lilju og Sigríði Bríet. Sigrún Elsa er í sambúð með Vilhjálmi Goða Friðrikssyni tónlistarmanni. Sigrún Elsa á þrjú börn úr fyrra sambandi með Róberti Marshall fjölmiðlamanni.