Ritverk Árna Árnasonar/Guðlaugur Vigfússon (Grafarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Guðlaugur Vigfússon bóndi og formaður á Vilborgarstöðum, fæddist 18. ágúst 1864 í Eyjum og lést 4. maí 1942.
Foreldrar hans voru Vigfús Einarsson bóndi á Miðhúsum, f. 17. júlí 1838 á Loftsölum í Mýrdal, lést í Vesturálfu, og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1834, látin í Vesturálfu.

Guðlaugur var með foreldrum sínum á Miðhúsum 1870. Hann var húsmaður og verslunarþjónn í Nýja-Kastala 1890, húsbóndi á Vilborgarstöðum 1901 með konu sinni Þórdísi Magnúsínu Árnadóttur húsfreyju.
Hann var ekkill og húsbóndi, „Utanbúðarmaður við verslunina Edinborg“, á Vilborgarstöðum 1910 með bústýrunni Margréti Hróbjartsdóttur, f. 15. maí 1881, d. 8. júlí 1964. Þar var einnig dóttir Margrétar, Ingibjörg Lára Ólafsdóttir, f. 11. júní 1907, d. 23. febrúar 1984.
Við manntal 1920 bjó Guðlaugur í Garðhúsum með bústýrunni Margréti, dóttur hennar Ingibjörgu Láru Ólafsdóttur og barninu Þórdísi Magnúsínu Guðlaugsdóttur.
Guðlaugur var verslunarmaður á Kirkjuvegi 13, Grafarholti, 1930.

Guðlaugur átti tvær konur.
I. Fyrri kona hans, (1893), var Þórdís Magnúsína Árnadóttir húsfreyja, f. 1859, dóttir Árna Einarssonar og Guðfinnu Austmann á Vilborgarstöðum. Hún lést 1910. Höfðu þau átt eitt barn, sem var látið 1910.
II. Síðari kona, nefnd bústýra, var Margrét Hróbjartsdóttir, f. 15. maí 1881 í Kálfholtssókn í Holtum, Rang., d. 8. júli 1964. Hún var síðar húsfreyja í Keflavík, kona Guðmundar Péturssonar.
Barn þeirra:
Þórdís Magnúsína Guðlaugsdóttir, f. 26. maí 1911, d. 5. júlí 1925, síðast á Gunnarshólma.

Guðlaugs er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Guðlaugur Vigfússon (Grafarholti)


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.