Rannveig Eyjólfsdóttir (Hlíðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. mars 2017 kl. 16:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2017 kl. 16:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Rannveig Eyjólfsdóttir''' frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja í Hlíðardal fæddist 9. september 1896 og lést 15. september 1982.<br> Foreldrar henna...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Rannveig Eyjólfsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja í Hlíðardal fæddist 9. september 1896 og lést 15. september 1982.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Jónsson bóndi á Mið-Grund, f. 12. ágúst 1861, d. 28. febrúar 1938, og kona hans Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. maí 1858, d. 7. október 1914.

Börn Eyjólfs og Jóhönnu í Eyjum:
1. Nikólína Eyjólfsdóttir húsfreyja í Laugardal, kona Eyjólfs Sigurðssonar; hún f. 25. mars 1887, d. 29. júní 1973.
2. Gunnsteinn Eyjólfsson verkamaður, sjómaður í Stafholti f. 14. mars 1893, d. 27. mars 1972. Kona hans var Gróa Þorleifsdóttir í Stafholti, húsfreyja, verkakona, f. 20. október 1896, d. 10. júlí 1991.
3. Rannveig Eyjólfsdóttir húsfreyja í Hlíðardal, kona Guðjóns Jónssonar skipstjóra; hún f. 9. september 1896, d. 15. september 1982.
3. Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja á Faxastíg 31, kona Einars Ingvarssonar frá Hellnahóli; hún f. 4. febrúar 1898, d. 29. nóvember 1980.

Rannveig var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim 1901 og 1910, vinnukona þar 1920.
Þau Guðjón giftu sig 1929 og bjuggu í Hlíðardal, eignuðust Ástu Sigurbjörgu 1929 og tóku Dóru Steindórsdóttur í fóstur 1939. Guðjón lést 1966 og Rannveig 1982.

Maður Rannveigar, (26. janúar 1929), var Guðjón Jónsson skipstjóri, útgerðarmaður í Hlíðardal, f. 15. desember 1899, d. 8. júlí 1966.
Barn þeirra:
1. Ásta Sigurbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1929 í Hlíðardal.
Fósturbarn þeirra, dóttir Steindórs bróður Guðjóns:
2. Dóra Steindórsdóttir húsfreyja, dagmóðir, f. 28. nóvember 1934 í Langa-Hvammi.
Stjúpbörn Rannveigar, börn Guðjóns og Sigurbjargar Guðmundsdóttur fyrri konu hans:
3. Jóhanna Magnúsína Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 6. september 1923 í Hlíðardal.
4. Bergþór Guðjónsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 28. ágúst 1925 í Hlíðardal, d. 18. nóvember 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.