Páll Zóphóníasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 11:27 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 11:27 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Zóphaníasson fæddist 12. júlí 1942 í Kaupmannahöfn. Fullu nafni heitir hann Páll Hjaltdal. Foreldrar hans Zóphanías Pálsson, skipulagsstjóri ríkisins og Lis Pálsson (Ulleman), háskólakennari.

Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðfjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg 1967-1972. Páll var bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Árin eftir það var hann bæjarstjóri, eða frá 1976-1982. Eftir það hefur hann rekið ráðgjafar- og teiknistofu í Vestmannaeyjum.

Páll er félagsforingi skátafélagsins Faxi og er formaður Norræna félagsins í Vestmannaeyjum.

Kona Páls heitir Sesselja Áslaug Hermannsdóttir frá Ísafirði. Heimildir:

Haraldur Guðnason. 1991. Við Ægisdyr, Saga Vestmannaeyja II. Reykjvík, Stofn. ISBN 00003056072