„Páll Zóphóníasson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Páll Zóphaníasson færð á Páll Zóphóníasson)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 28. júní 2005 kl. 17:16

Páll Hjaltdal Zóphaníasson fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann er sonur Zóphaníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Ulleman), háskólakennara.

Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðfjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg á árunum 1967-1972. Páll starfaði svo sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Hann tók við sem bæjarstjóri á árunum 1976-1982. Síðan þá hefur hann rekið ráðgjafar- og teiknistofu, Teiknistofa PZ, í Vestmannaeyjum.

Páll er félagsforingi skátafélagsins Faxi og er formaður Norræna félagsins í Vestmannaeyjum. Hann er ennfremur sænski konsúllinn í Vestmannaeyjum. Hann er giftur Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin Zóphanías og Sif.

Heimildir

Haraldur Guðnason. 1991. Við Ægisdyr, Saga Vestmannaeyja II. Reykjvík, Stofn. ISBN 0-0003-05607-2