Oddur Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 12:39 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 12:39 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Oddur lengst til vinstri og systkini.

Oddur Sigurðsson, Dal, fæddist að Skuld í Vestmannaeyjum 25. maí 1911. Foreldrar hans voru Sigurður Oddsson og Ingunn Jónasdóttir. Kona Odds var Lovísa Magnúsdóttir. Sigurður Pétur Oddsson er sonur þeirra.

Oddur byrjaði formennsku árið 1932 með Hansínu. Eftir það var hann meðal annars með Maí, Jötun og Frigg. Oddur lést 19 nóvember 1979.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Odd:

Oddur traustur græðis grér
gerir byggja Dalinn,
tíðar afla ferðir fer
fær með Jötunn valinn.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.