Oddur Bjarnason (Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Oddur Bjarnason''' bóndi í Norðurgarði og á Gjábakka, síðar tómthúsmaður í Kastala, fæddist 1746 og lést líklega fyrir...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Oddur Bjarnason bóndi í Norðurgarði og á Gjábakka, síðar tómthúsmaður í Kastala, fæddist 1746 og lést líklega fyrir mt. 1816.

Oddur var bóndi í Norðurgarði 1786 og 1789. Hann var ekkill og bóndi á Gjábakka 1798 og í Kastala 1798 og 1801.

Oddur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Ragnhildur Magnúsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 1752, d. 5. nóvember 1789 úr „sinakreppu“, líklega stífkrampa, (ginklofa).
Börn þeirra hér:
1. Margrét Oddsdóttir, f. 30. júlí 1786, d. 5. ágúst 1786 úr ginklofa.
2. Hjalti Oddsson, f. 14. september 1787, d. 20. september 1787 úr ginklofa.
3. Jón Oddsson, f. 29. nóvember 1788, d. 7. desember 1788 úr ginklofa.

II. Síðari kona Odds, (trúlofun í desember 1798), var Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1760, líklega látin fyrir mt. 1816.<br Börn þeirra:
5. Helgi Oddsson, f. 9. ágúst 1798, d. 19. ágúst úr ginklofa.
6. Sesselja Oddsdóttir, f. 27. maí 1803, d. 4. júní 1803 úr ginklofa.


Heimildir