„Mormónar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 5: Lína 5:
Ekki voru allir jafn hrifnir af þessu trúboði og hófu kirkjan og yfirvöld baráttu gegn þessari nýmóðins trú. Reyndi presturinn, [[Séra Brynjólfur Jónsson]], að telja þeim nýju í trúnni hughvarf.
Ekki voru allir jafn hrifnir af þessu trúboði og hófu kirkjan og yfirvöld baráttu gegn þessari nýmóðins trú. Reyndi presturinn, [[Séra Brynjólfur Jónsson]], að telja þeim nýju í trúnni hughvarf.


Árið 1873 komu [[Magnús Bjarnason]] og [[Loftur Jónsson]] frá [[Þorlaugargerði]] til þess að reyna að snúa mönnum til mormónsku. Margir tóku trúna og fóru til Utah með þeim félögum. Góður vinur [[Hannes Jónsson|Hannesar Jónssonar, lóðs]], tók trúna og reyndi að sannfæra Hannes um að taka trú en hann var fastur fyrir. Hannes sótti þó stundum messur þeirra en var alltaf fráhverfur því að gerast mormóni.
Árið 1873 komu [[Magnús Bjarnason]] og [[Loftur Jónsson (Þorlaugargerði)|Loftur Jónsson]] frá [[Þorlaugargerði]] til þess að reyna að snúa mönnum til mormónsku. Margir tóku trúna og fóru til Utah með þeim félögum. Góður vinur [[Hannes Jónsson|Hannesar Jónssonar, lóðs]], tók trúna og reyndi að sannfæra Hannes um að taka trú en hann var fastur fyrir. Hannes sótti þó stundum messur þeirra en var alltaf fráhverfur því að gerast mormóni.





Núverandi breyting frá og með 22. mars 2013 kl. 16:52

Mormónar hófu að venja komur sínar til Eyja upp úr miðri 19. öldinni. Einhverjir tóku þá við trúnni og skírt var til trúarinnar á nokkrum stöðum á eynni, m.a. suður við Ræningjatanga, þar sem heitir Mormónalón, við Torfmýri þar sem heitir Mormónapollur og í Litlu-Löngu. Þær athafnir fóru helst fram á haustkvöldum við tunglskin.

Um 1870 greip um sig mikill áhugi á mormónatrú þegar trúboðar frá Utah, Bandaríkjunum, komu til Eyja. Voru þeir hjá Sveini beyki á Löndum og héldu messur þar.

Ekki voru allir jafn hrifnir af þessu trúboði og hófu kirkjan og yfirvöld baráttu gegn þessari nýmóðins trú. Reyndi presturinn, Séra Brynjólfur Jónsson, að telja þeim nýju í trúnni hughvarf.

Árið 1873 komu Magnús Bjarnason og Loftur Jónsson frá Þorlaugargerði til þess að reyna að snúa mönnum til mormónsku. Margir tóku trúna og fóru til Utah með þeim félögum. Góður vinur Hannesar Jónssonar, lóðs, tók trúna og reyndi að sannfæra Hannes um að taka trú en hann var fastur fyrir. Hannes sótti þó stundum messur þeirra en var alltaf fráhverfur því að gerast mormóni.



Heimildir

  • Frá mormónunum í Eyjum. Gamalt og nýtt. 4. árg. 2. hefti 1952. Reykjavík: Víkingsprent.