Matthías Gunnlaugur Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2019 kl. 20:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2019 kl. 20:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Matthías Gunnlaugur Guðmundsson frá Heiðarbæ, húsasmiður fæddist 19. nóvember 1920 í Reykjavík og lést 25. október 1997 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876 í Ártúni við Reykjavík, d. 2. október 1958, og síðari kona hans Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.

Börn Guðmundar og Kristjönu Rósu Sigurðardóttur fyrri konu hans í Eyjum:
1. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
2. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
3. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
4. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.
Börn Guðmundar og Guðríðar Þórunnar síðari konu hans í Eyjum:
5. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 17. nóvember 1985.
6. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
7. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920 í Reykjavík, d. 25. október 1997.
Barn Guðmundar með Vilborgu Kristjánsdóttur:
8. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.
Barn Guðmundar með Ólínu Sigríði Ólafsdóttur:
9. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

Matthías var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó með þeim á Eiðinu, að Ofanleiti, í Stórhöfðavita, á Brimhólum og í Heiðarbæ. Þau fluttust að Hnausum á Snæfellsnesi 1936 og að Skjaldartröð í Breiðavík þar.
Þau Friðbjörg Ólína hófu búskap á Kirkjuhól í Staðarsveit 1945. Hann vann við húsabyggingar í sveitum til 1947, á Akranesi 1947-1951 og stundaði smíðavinnu í Hvalstöðinni í Hvalfirði og starfaði síðan við vinnslu þar til 1953. Hann starfaði á Keflavíkurflugvelli 1953-1955 þar sem hann var við pípulagnir hjá varnarliðinu og vann síðan byggingavinnu í Keflavík og nágrenni.
Matthías nam húsasmíði við Iðnskólann í Keflavík 1955-1959 og lauk sveinsprófi 1961.
Hann var verkstjóri hjá byggingaverktökum frá 1957 þar til hann hætti störfum vegna aldurs.
Matthías sat í stjórn Verkstjórafélags Suðurnesja og í stjórn Iðnaðarmannafélags Suðurnesja 1966-1968. Hann var varamaður í prófnefnd húsasmiða og sat í fasteignamatsnefnd. Hann sat í stjórn Vestmannafélags Suðurnesja og Snæfellingafélagsins.
Þau Friðbjörg Ólína giftu sig 1956, eignuðust tvö börn.

I. Kona Matthíasar Gunnlaugs, (6. október 1956), var Friðbjörg Ólína Kristjánsdóttir frá Einarslóni á Snæfellsnesi, f. 8. júní 1928, d. 30. mars 2003. Foreldrar hennar voru Kristján Guðjón Jónsson sjómaður á Einarslóni, skósmiður á Akranesi og í Keflavík, f. 23. janúar 1891, d. 13. mars 1970, og kona hans Jóney Margrét Jónsdóttir, f. 27. júlí 1900, d. 29. mars 1994.
Börn þeirra:
1. Sigurður Sævar Matthíasson þjónn, verslunarrekandi, bakari, bóksali, f. 16. febrúar 1946, d. 16. júní 2015.
2. Hafdís Matthíasdóttir húsfreyja, f. 14. desember 1955. Maður hennar er Sigbjörn Ingimundarson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.