Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 18:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 18:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Sveinsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.
Foreldrar hennar voru Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1817, d. 8. október 1859.

Margrét var elst 6 barna hjónanna og það eina, sem náði fullorðins aldri.
Hún var með foreldrum sínum á Vesturhúsum og síðan með ekklinum föður sínum, en 1880 var hún vinnukona í Jómsborg hjá Engilbert Engilbertssyni og Jórunni Austmann.
Hún hrapaði 30. maí 1882 úr Dalfjalli á niðurleið á Hæltám og féll í Kaplagjótu.


Heimildir