„Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Sveinsdóttir''' frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.<br> Foreldrar hennar voru [[Sveinn Hjaltason (Vesturhúsum)|Svei...)
 
m (Verndaði „Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 12. mars 2014 kl. 18:30

Margrét Sveinsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.
Foreldrar hennar voru Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1817, d. 8. október 1859.

Margrét var elst 6 barna hjónanna og það eina, sem náði fullorðins aldri.
Hún var með foreldrum sínum á Vesturhúsum og síðan með ekklinum föður sínum, en 1880 var hún vinnukona í Jómsborg hjá Engilbert Engilbertssyni og Jórunni Austmann.
Hún hrapaði 30. maí 1882 úr Dalfjalli á niðurleið á Hæltám og féll í Kaplagjótu.


Heimildir