Margrét Sigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (stytti framætt maka.)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Sigfúsdóttir innanhússarkitekt fæddist 19. júlí 1963 í Eyjum.
Foreldrar: Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.
Margrét lauk stúdentsprófi við Verzlunarskóla Íslands 1983, nam innanhússarkitektúr við Danmarks Design Skole og lauk prófi þaðan 1991.
Hún hefur starfað í Reykjavík, en býr nú að Gengishólaparti í Flóa.
Maki I (26. maí 1984, skildu 2000): Heimir Gunnarsson málarameistari, f. 15. marz 1959 í Rvk.
Foreldrar: Gunnar Þorbergur Hannesson málmsteypumaður, síðar starfsmaður Vatnsveitu Reykjavíkur, f. 1925 og k.h. Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1924.
Börn: Sigfús, f. 1. febr. 1982, Atli, f. 31. ágúst 1987, Karen Sif, f. 20. nóv. 1994.
Maki II, sambýlismaður: Bjarni Sigurðsson framkvæmdastjóri, f. 1. marz 1961 í Rvk.
Foreldrar: Sigurður Gunnar Bjarnason rafvirki, f. 1925, d. 2001 og k.h. (skildu) Þórunn Friðriksdóttir húsmóðir, f. 1929.


Heimildir:

  • Pers.