„Loftur Jónsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(11 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
Loftur Jónsson mormóni. Sjá [[Blik 1963|Mormónarnir í Vestmannaeyjum]] í [[Blik 1963|Bliki 1963]].
'''Loftur Jónsson''' formaður, bóndi, smiður, meðhjálpari, mormónatrúboði og mormónabiskup frá [[Þorlaugargerði]] fæddist 24. júlí 1814 á Butru í Fljótshlíð og lést 9. september 1874 í Utah.

Foreldrar hans voru Jón Árnason bóndi á Butru, síðan formaður á Bakka í A-Landeyjum, f. 1772 í Deild í Fljótshlíð, d. 18. febrúar 1841 á Bakka, og kona hans Þorgerður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Skaftártungu í V-Skaft., d. 9. mars 1859 á Bakka.

Loftur var bróðir [[Árni Jónsson (Vilborgarstöðum)|Árna Jónssonar]] bónda á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. 31. janúar 1812, d. 8. janúar 1855, fyrri manns [[Björg Árnadóttir (Vilborgarstöðum)|Bjargar Árnadóttur]] húsfreyju, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1815.

Loftur kom til Eyja 1836 og gerðist fyrirvinna hjá [[Guðrún Hallsdóttir (Þorlaugargerði)|Guðrúnu Hallsdóttur]] ekkju í [[Þorlaugargerði]]. Þau giftust um haustið.

Loftur varð snemma fjölvirkur í Eyjum. Hann var bóndi í Þorlaugargerði, aflasæll formaður, trésmiður, meðhjálpari og sáttamaður og, kjörinn af Eyjabúum til setu á Þjóðfundinum 1851.

Aflasæld hans var mikil. Þannig fékk hann 10. hundruð tólfræð (120x10) af þorski í hlut á einni vertíðinni um miðja 19. öld. Svo stór hlutur var  kallaður „lestarhlutur“. Algengir voru 2-4 hundraða hlutir og upp í 5, þegar vel lét.

Hann skírðist til mormónatrúar 1851 og vegna trúar sinnar mætti hann bæði almennu mótlæti í héraðinu og ekki bætti úr skák fyrir honum, að hann var meðhjálpari og góðvinur sr. [[Jón Austmann|Jóns Austmanns]], sem barðist hatrammlega gegn mormónatrúnni. Trúfrelsi var ekki í landinu og gátu yfirvöld því barist gegn „villutrúnni“ af öllum mætti. Þannig var um kjör hans til setu á Þjóðfundinum 1851. Það kjör var afturkallað vegna trúar hans.

Loftur fór með fjölskyldu sinni til Utah 1857. Hann varð þar stórbóndi og nefndur mormónabiskup. Hann kom til Íslands aftur 1873, stundaði trúboð og sjómennsku. Guðrún kona hans hafði látist Vestra og síðar kvæntist Loftur aftur og þá Halldóru Árnadóttur.

Loftur sneri til Utah 1874 og lést eftir slysfarir þar haustið 1874.

[[Mynd:Hús Lofts í Þorlaugargerði.jpg|ctr|400px]]

Hús og heimili Gísla Einarssonar bónda og dýralæknis í Spanish Fork í Utah um 1910. Hús þetta reisti Loftur Jónsson mormónaprestur frá [[Þorlaugargerði]]. Hér eru nokkrir Íslendingar. Lengst til vinstri situr [[Margrét Gísladóttir (Görðum við Kirkjubæ)|Margrét Gísladóttir]] frá [[Garðar við Kirkjubæ|Görðum við Kirkjubæ]], þá 88 ára. Hún var þá ekkja [[Samúel Bjarnason mormónaprestur|Samúels Bjarnasonar]] mormónaprests. Fyrir miðju situr [[Halldóra Árnadóttir (Godthaab)|Halldóra Árnadóttir]] síðari kona Lofts og henni á v. hönd situr [[Guðrún Jónsdóttir eldri (Þorlaugargerði)|Guðrún Jónsdóttir]] stjúpdóttir hennar. Fyrir aftan þær stendur Gísli Einarsson frá Hrífunesi. Hann kvæntist Halldóru Árnadóttur ekkju Lofts.

Ítarleg umfjöllun er í greinum [[Sigfús M. Johnsen|Sigfúsar sýslumanns]] í [[Blik]]i og [[Saga Vestmannaeyja|Sögu Vestmannaeyja]] og í [[Blik 1963|Blik]]i 1963: [[Blik 1963|Saga Brynjólfs Jónssonar, fimmti hluti]] eftir [[Þorsteinn Þ. Víglundsson|Þorstein Þ. Víglundsson]]. (Sjá Heimildaskrá).

Loftur var tvíkvæntur.

I. Fyrri kona Lofts, (27. október 1836), var [[Guðrún Hallsdóttir (Þorlaugargerði)|Guðrún Hallsdóttir]] húsfreyja, f. 8. ágúst 1794, ekkja eftir [[Jón Oddsson (Þorlaugargerði)|Jón Oddsson]] bónda og sjómann.

Börn þeirra voru:

1. Jón Loftsson, f. 22. september 1837 í Þorlaugargerði, d. 1. október 1837 úr ginklofa.

2. Loftur Loftsson, f. 18. desember 1838 í Þorlaugargerði, d. 28. desember 1838 úr ginklofa.

Stjúpbörn Lofts, börn Guðrúnar og Jóns Oddssonar:

3. [[Guðrún Jónsdóttir eldri (Þorlaugargerði)|Guðrún Jónsdóttir]], f. 13. nóvember 1826 í Brekkuhúsi, fór til Vesturheims 1857.

4. [[Jón Jónsson eldri (Þorlaugargerði)|Jón Jónsson]], f. 31. júlí 1834 í Þorlaugargerði, fór til Vesturheims 1857.

II. Síðari kona hans var [[Halldóra Árnadóttir (Godthaab)|Halldóra Árnadóttir]] úr Vestur-Skaftafellssýslu, en hún hafði verið vinnukona í [[Godthaab]].

Barn þeirra var

1. Juliana Johnson, f. 30. júlí 1874 í Spanish Fork, d. sama dag.

{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur.
* [[Blik 1960|Blik 1960]], [[Blik 1960|Þórarinn Hafliðason, fyrri hluti]].

* [[Blik 1960|Blik 1960]], [[Blik 1960|Þórarinn Hafliðason, seinni hluti]].

* [[Blik 1961|Blik 1961]], [[Blik 1961|Fyrstu mormónarnir, sem skírðir voru á Íslandi]].

* [[Blik 1962|Blik 1962]], [[Blik 1962|Fyrstu íslenzku hjónin í Vesturheimi]].

* [[Blik 1963| Blik 1963]], [[Blik 1963|Mormónarnir í Vestmannaeyjum, 4. grein]].

* [[Blik 1965| Blik 1965]], [[Blik 1965|Mormónarnir í Vestmannaeyjum]].

*  [[Saga Vestmannaeyja]],  [[Saga Vestmannaeyja|I./ V. Um Mormónana í Vestmannaeyjum]].

* [[Blik 1963|Blik 1963]], [[Blik 1963|Saga Brynjólfs Jónssonar, fimmti hluti]] eftir [[Þorsteinn Þ. Víglundsson|Þorstein Þ. Víglundsson]]. }}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}

[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Formenn]]
[[Flokkur: Aflakóngar]]
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]]
[[Flokkur: Mormónar]]
[[Flokkur: Meðhjálparar]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Þorlaugargerði]]
[[Flokkur: Vesturfarar]]
[[Flokkur: Mormónar]]

Núverandi breyting frá og með 31. janúar 2016 kl. 14:31

Loftur Jónsson formaður, bóndi, smiður, meðhjálpari, mormónatrúboði og mormónabiskup frá Þorlaugargerði fæddist 24. júlí 1814 á Butru í Fljótshlíð og lést 9. september 1874 í Utah.
Foreldrar hans voru Jón Árnason bóndi á Butru, síðan formaður á Bakka í A-Landeyjum, f. 1772 í Deild í Fljótshlíð, d. 18. febrúar 1841 á Bakka, og kona hans Þorgerður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Skaftártungu í V-Skaft., d. 9. mars 1859 á Bakka.

Loftur var bróðir Árna Jónssonar bónda á Vilborgarstöðum, f. 31. janúar 1812, d. 8. janúar 1855, fyrri manns Bjargar Árnadóttur húsfreyju, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1815.

Loftur kom til Eyja 1836 og gerðist fyrirvinna hjá Guðrúnu Hallsdóttur ekkju í Þorlaugargerði. Þau giftust um haustið.
Loftur varð snemma fjölvirkur í Eyjum. Hann var bóndi í Þorlaugargerði, aflasæll formaður, trésmiður, meðhjálpari og sáttamaður og, kjörinn af Eyjabúum til setu á Þjóðfundinum 1851.
Aflasæld hans var mikil. Þannig fékk hann 10. hundruð tólfræð (120x10) af þorski í hlut á einni vertíðinni um miðja 19. öld. Svo stór hlutur var kallaður „lestarhlutur“. Algengir voru 2-4 hundraða hlutir og upp í 5, þegar vel lét.
Hann skírðist til mormónatrúar 1851 og vegna trúar sinnar mætti hann bæði almennu mótlæti í héraðinu og ekki bætti úr skák fyrir honum, að hann var meðhjálpari og góðvinur sr. Jóns Austmanns, sem barðist hatrammlega gegn mormónatrúnni. Trúfrelsi var ekki í landinu og gátu yfirvöld því barist gegn „villutrúnni“ af öllum mætti. Þannig var um kjör hans til setu á Þjóðfundinum 1851. Það kjör var afturkallað vegna trúar hans.
Loftur fór með fjölskyldu sinni til Utah 1857. Hann varð þar stórbóndi og nefndur mormónabiskup. Hann kom til Íslands aftur 1873, stundaði trúboð og sjómennsku. Guðrún kona hans hafði látist Vestra og síðar kvæntist Loftur aftur og þá Halldóru Árnadóttur.
Loftur sneri til Utah 1874 og lést eftir slysfarir þar haustið 1874.

ctr

Hús og heimili Gísla Einarssonar bónda og dýralæknis í Spanish Fork í Utah um 1910. Hús þetta reisti Loftur Jónsson mormónaprestur frá Þorlaugargerði. Hér eru nokkrir Íslendingar. Lengst til vinstri situr Margrét Gísladóttir frá Görðum við Kirkjubæ, þá 88 ára. Hún var þá ekkja Samúels Bjarnasonar mormónaprests. Fyrir miðju situr Halldóra Árnadóttir síðari kona Lofts og henni á v. hönd situr Guðrún Jónsdóttir stjúpdóttir hennar. Fyrir aftan þær stendur Gísli Einarsson frá Hrífunesi. Hann kvæntist Halldóru Árnadóttur ekkju Lofts.

Ítarleg umfjöllun er í greinum Sigfúsar sýslumanns í Bliki og Sögu Vestmannaeyja og í Bliki 1963: Saga Brynjólfs Jónssonar, fimmti hluti eftir Þorstein Þ. Víglundsson. (Sjá Heimildaskrá).

Loftur var tvíkvæntur.

I. Fyrri kona Lofts, (27. október 1836), var Guðrún Hallsdóttir húsfreyja, f. 8. ágúst 1794, ekkja eftir Jón Oddsson bónda og sjómann.
Börn þeirra voru:
1. Jón Loftsson, f. 22. september 1837 í Þorlaugargerði, d. 1. október 1837 úr ginklofa.
2. Loftur Loftsson, f. 18. desember 1838 í Þorlaugargerði, d. 28. desember 1838 úr ginklofa.
Stjúpbörn Lofts, börn Guðrúnar og Jóns Oddssonar:
3. Guðrún Jónsdóttir, f. 13. nóvember 1826 í Brekkuhúsi, fór til Vesturheims 1857.
4. Jón Jónsson, f. 31. júlí 1834 í Þorlaugargerði, fór til Vesturheims 1857.

II. Síðari kona hans var Halldóra Árnadóttir úr Vestur-Skaftafellssýslu, en hún hafði verið vinnukona í Godthaab.
Barn þeirra var
1. Juliana Johnson, f. 30. júlí 1874 í Spanish Fork, d. sama dag.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.