„Lárus Jónsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 23: Lína 23:
[[Mynd:Júlíana Sigurðardóttirog Pétur Lárusson á Búastöðum.jpg|thumb|250px|Júlíana Sigurðardóttirog Pétur Lárusson]]
[[Mynd:Júlíana Sigurðardóttirog Pétur Lárusson á Búastöðum.jpg|thumb|250px|Júlíana Sigurðardóttirog Pétur Lárusson]]
Kona hans (2. október 1862) var [[Kristín Gísladóttir (Búastöðum)|Kristín Gísladóttir]], f. 13. janúar 1843 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. desember 1921 á [[Búastaðir vestri| Vestri Búastöðum]] í Eyjum.<br>   
Kona hans (2. október 1862) var [[Kristín Gísladóttir (Búastöðum)|Kristín Gísladóttir]], f. 13. janúar 1843 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. desember 1921 á [[Búastaðir vestri| Vestri Búastöðum]] í Eyjum.<br>   
Börn þeirra Kristínar voru:  
Börn þeirra Kristínar: (Sjá [[Kristín Gísladóttir (Búastöðum)|Kristínu]]).  
#[[Ólöf Lárusdóttir|Ólöf]] húsfreyja á [[Kirkjuból]]i, f. 19. desember 1862 í Pétursey í Mýrdal, d. 16. nóvember 1944 í Eyjum, gift [[Guðjón Björnsson  (Kirkjubóli)|Guðjóni Björnssyni]].
#[[Gísli Lárusson|Gísli]] gullsmiður í [[Stakkagerði]], f. 16. febrúar 1865 í [[Kornhóll|Kornhól]], d. 27. september 1935, kvæntur [[Jóhanna Sigríður Árnadóttir|Jóhönnu Sigríði Árnadóttur]], [[Árni Diðriksson|Diðrikssonar]].
#[[Jóhanna Lárusdóttir|Jóhanna]] húsfreyja á [[Grund]] í Eyjum, f. 23. september 1868 í Kornhól, d. 8. desember 1953, gift [[Árni Árnason (Grund)|Árna Árnasyni]]. Áður átti hún barn með [[Oddur Árnason (Oddsstöðum)|Oddi Árnasyni]], en hann var sonur [[Árni Þórarinsson (bóndi)|Árna Þórarinssonar]] bónda á [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]] og [[Steinunn Oddsdóttir|Steinunnar Oddsdóttur]] húsfreyju. Barnið var [[Árni Oddsson (Burstafelli)|Árni Oddsson]] á [[Burstafell|Burstafelli]].
#[[Steinvör Lárusdóttir (Búastöðum)|Steinvör]] húsfreyja, f. 12. júlí 1866 í Kornhól, d. um 1940 í Blaine í Washington-fylki í Bandaríkjunum, gift [[Einar Bjarnason (Dölum)|Einari Bjarnasyni]] frá Dölum.
#Auðbjörg, f. 28. sept. 1871, d. 6. des. sama ár.
#Auðbjörg Jónína, f. 16. júlí 1873, d. 27. sept. sama ár.
#[[Pétur Lárusson|Jóhann ''Pétur'']] á Búastöðum, f. 16. desember 1876, d. 18. október 1953, kvæntur [[Júlíana Sigurðardóttir (Búastöðum)|Júlíönu Sigurðardóttur]].
#[[Lárus Kristján Lárusson (Búastöðum)|Lárus Kristján]], f. 19. okt. 1874, d. 17. febr. 1890.
#[[Fríður Lárusdóttir|Jórunn ''Fríður'']] húsfreyja í [[Stakkagerði]], síðar á [[Hvassafell]]i, f. 17. apríl 1880, d. 7. október 1959, gift [[Sturla Indriðason (Hvassafelli)|Sturlu Indriðasyni]].
#Ingunn Katrín, f. 27. nóv. 1885, d. 17. febr. 1888.
 
==Ættbogi í Eyjum==
==Ættbogi í Eyjum==
Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður [[Þorsteinn Ólafsson (Háagarði)|Þorsteins]] í [[Háigarður|Háagarði]], f. 16. okt. 1859, föður [[Helga Þorsteinsdóttir (Kirkjubæ)|Guðleifar ''Helgu'']] húsfreyju á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 22. sept.1898, konu [[Þorbjörn Guðjónsson|Þorbjörns Guðjónssonar]] bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir [[Þórunn Ketilsdóttir (Litlabæ)|Þórunnar Ketilsdóttur]] í [[Litlibær|Litlabæ]] (Tótu í [[Uppsalir|Uppsölum]]), f. 1865, og Heiðu ([[Brynheiður Ketilsdóttir|Brynheiðar Ketilsdóttur]]) í [[Gerði-stóra|Gerði]], f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni [[Gísli Geirmundsson]], f. 1874, faðir [[Guðlaugur Gíslason|Guðlaugs Gíslasonar]] bæjarstjóra og alþingismanns.
Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður [[Þorsteinn Ólafsson (Háagarði)|Þorsteins]] í [[Háigarður|Háagarði]], f. 16. okt. 1859, föður [[Helga Þorsteinsdóttir (Kirkjubæ)|Guðleifar ''Helgu'']] húsfreyju á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 22. sept.1898, konu [[Þorbjörn Guðjónsson|Þorbjörns Guðjónssonar]] bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir [[Þórunn Ketilsdóttir (Litlabæ)|Þórunnar Ketilsdóttur]] í [[Litlibær|Litlabæ]] (Tótu í [[Uppsalir|Uppsölum]]), f. 1865, og Heiðu ([[Brynheiður Ketilsdóttir|Brynheiðar Ketilsdóttur]]) í [[Gerði-stóra|Gerði]], f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni [[Gísli Geirmundsson]], f. 1874, faðir [[Guðlaugur Gíslason|Guðlaugs Gíslasonar]] bæjarstjóra og alþingismanns.

Útgáfa síðunnar 22. febrúar 2013 kl. 14:57

Lárus og Kristín kona hans

Lárus Jónsson bóndi, formaður og hreppstjóri í Kornhól og Vestri Búastöðum, fæddist 30. janúar 1839 og lézt 9. febrúar 1895, drukknaði.

Ætt og uppruni

Foreldrar hans voru Jón bóndi á Dyrhólum í Mýrdal, f. 25. nóvember 1808 á Steig í Mýrdal, d. 20. júní 1882 í Hryggjum þar, Ólafs bónda á Steig, f. 1758 á Lambafelli, d. 1812-1816, Einarssonar, Ólafssonar og seinni konu Ólafs bónda á Steig, Fríðar húsfreyju á Steig 1801, f. 1768, d. 5. júní 1835, Jónsdóttur, Bjarnasonar. Móðir Lárusar og kona Jóns bónda var Ólöf húsfreyja, f. 4. júní 1811 á Höfðabrekku í Mýrdal, d. 14. júní 1873 á Vestri Búastöðum í Eyjum, Eiríksdóttir, Sighvatssonar og konu Eiríks, Sigríðar húsfreyju, f. 1768, Þorsteinsdóttur.

Lífsferill

Lárus á Búastöðum fluttist til Eyja 1863, en áður hafði hann komið þangað reglulega á árunum 1857-1860 til lundaveiða. Hann settist að í Kornhól , en að Vestri Búastöðum flutti hann 1869 og þá í gamla bæinn. Hann fékk byggingu fyrir jörðinni Syðri Búastaðir (Vestri-Búastaðir) 1870. (Eystri-Búastaðir stóðu áður norðan við þá og því nafnið Syðri-Búastaðir). Þar byggði hann bæinn upp 1888 og bætti jörðina mikið með sléttun og stækkun. Hann hafði 2 kýr, 12 ær og nokkuð af lömbum, eitt hross. Auk þessa hafði hann fé í hagagöngu í Elliðaey, en þar átti jörðin beitarrétt. Jörðin átti hlunnindi í veiði, svo sem fýlatekju í Stórhöfða, rekafjöru í Brimurð, lundatekju o.fl. í Elliðaey, súlu- og fýlatekju í Súlnaskeri og Hellisey o. fl.
Lárus kom mjög við sögu Eyjanna. Honum er svo lýst af Árna símritara, dóttursyni hans, að „Hann var góður bóndi og vel stæður, smiður ágætur á skip og hús, formaður heppinn og fiskisæll, mikill umbótamaður á opinberum vettvangi, hafnsögumaður og hreppstjóri. Kunnastur sem formaður með skipin „Enok” (t.d. í útilegunni miklu 1869) og mörg ár með „Frið”. Þá var Lárus kunnur lundaveiðimaður, bæði í holu og með háf, og einn af þeim, er komu austan úr Mýrdal til fuglaveiða hér 1857-1860. Veiddi hann 17-32 kippur árlega frá byrjun lundaveiða til sláttarbyrjunar......”. Lárus drukknaði á skipinu „Hannibal” í innsiglingunni 9. febr. 1895.
Þá var kveðið:

Hreppstjóri Lárus nú sefur í sæ
þó sjáist ei grafreitar merki,
en lítum við skipin og lítum hans bæ
þá lítum við handanna verkin.
Nú horfinn er snillingur, hnípin er sveit,
því Heimaey grætur þann öðling um aldir.

Fjölskylda

Þrjú af börnum hjónanna frá vinstri: Jóhanna, Jórunn Fríður og Jóhann Pétur
Júlíana Sigurðardóttirog Pétur Lárusson

Kona hans (2. október 1862) var Kristín Gísladóttir, f. 13. janúar 1843 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. desember 1921 á Vestri Búastöðum í Eyjum.
Börn þeirra Kristínar: (Sjá Kristínu).

Ættbogi í Eyjum

Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður Þorsteins í Háagarði, f. 16. okt. 1859, föður Guðleifar Helgu húsfreyju á Kirkjubæ, f. 22. sept.1898, konu Þorbjörns Guðjónssonar bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir Þórunnar Ketilsdóttur í Litlabæ (Tótu í Uppsölum), f. 1865, og Heiðu (Brynheiðar Ketilsdóttur) í Gerði, f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni Gísli Geirmundsson, f. 1874, faðir Guðlaugs Gíslasonar bæjarstjóra og alþingismanns.


Heimildir