„Lárus Jónsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Eyddi villandi tengli.)
Ekkert breytingarágrip
Lína 34: Lína 34:
Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður [[Þorsteinn Ólafsson|Þorsteins]] í [[Háigarður|Háagarði]], f. 16. okt. 1859, föður [[Helga Þorsteinsdóttir|Guðleifar ''Helgu'']] húsfreyju á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 22. sept.1898, konu [[Þorbjörn Guðjónsson|Þorbjörns Guðjónssonar]] bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir [[Þórunn Ketilsdóttir|Þórunnar Ketilsdóttur]] í [[Litlibær|Litlabæ]] (Tótu í [[Uppsalir|Uppsölum]]), f. 1865, og Heiðu ([[Brynheiður Ketilsdóttir|Brynheiðar Ketilsdóttur]]) í [[Gerði-stóra|Gerði]], f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni [[Gísli Geirmundsson]], f. 1874, faðir [[Guðlaugur Gíslason|Guðlaugs Gíslasonar]] bæjarstjóra og alþingismanns.
Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður [[Þorsteinn Ólafsson|Þorsteins]] í [[Háigarður|Háagarði]], f. 16. okt. 1859, föður [[Helga Þorsteinsdóttir|Guðleifar ''Helgu'']] húsfreyju á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 22. sept.1898, konu [[Þorbjörn Guðjónsson|Þorbjörns Guðjónssonar]] bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir [[Þórunn Ketilsdóttir|Þórunnar Ketilsdóttur]] í [[Litlibær|Litlabæ]] (Tótu í [[Uppsalir|Uppsölum]]), f. 1865, og Heiðu ([[Brynheiður Ketilsdóttir|Brynheiðar Ketilsdóttur]]) í [[Gerði-stóra|Gerði]], f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni [[Gísli Geirmundsson]], f. 1874, faðir [[Guðlaugur Gíslason|Guðlaugs Gíslasonar]] bæjarstjóra og alþingismanns.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson.]]''
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].''
*[[Árni Árnason (símritari)|Árni Árnason]]: Búastaðahjónin. ''[[Blik]]'', 1957.  
*[[Árni Árnason (símritari)|Árni Árnason]]: Búastaðahjónin. ''[[Blik]]'', 1957.  
*Björn Magnússon. ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur, 1970-1973.
*Björn Magnússon. ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur, 1970-1973.

Útgáfa síðunnar 14. júní 2007 kl. 14:13

Lárus Jónsson bóndi, formaður og hreppstjóri í Kornhól og Syðri Búastöðum, fæddist 30. janúar 1839 og lézt 9. febrúar 1895, drukknaði.

Ætt og uppruni

Foreldrar hans voru Jón bóndi á Dyrhólum í Mýrdal, f. 25. nóvember 1808 á Steig í Mýrdal, d. 20. júní 1882 í Hryggjum þar, Ólafs bónda á Steig, f. 1758 á Lambafelli, d. 1812-1816, Einarssonar, Ólafssonar og seinni konu Ólafs bónda á Steig, Fríðar húsfreyju á Steig 1801, f. 1768, d. 5. júní 1835, Jónsdóttur, Bjarnasonar. Móðir Lárusar og kona Jóns bónda var Ólöf húsfreyja, f. 4. júní 1811 á Höfðabrekku í Mýrdal, d. 14. júní 1873 á Syðri Búastöðum í Eyjum, Eiríksdóttir, Sighvatssonar og konu Eiríks, Sigríðar húsfreyju, f. 1768, Þorsteinsdóttur.

Lífsferill

Lárus á Búastöðum fluttist til Eyja 1863, en áður hafði hann komið þangað reglulega á árunum 1857-1860 til lundaveiða. Hann settist að í Kornhól , en að Syðri Búastöðum flutti hann 1869 og þá í gamla bæinn. Hann fékk byggingu fyrir jörðinni Syðri Búastaðir (Vestri-Búastaðir) 1870. (Eystri-Búastaðir stóðu áður norðan við þá og því nafnið Syðri-Búastaðir). Þar byggði hann bæinn upp 1888 og bætti jörðina mikið með sléttun og stækkun. Hann hafði 2 kýr, 12 ær og nokkuð af lömbum, eitt hross. Auk þessa hafði hann fé í hagagöngu í Elliðaey, en þar átti jörðin beitarrétt. Jörðin átti hlunnindi í veiði, svo sem fýlatekju í Stórhöfða, rekafjöru í Brimurð, lundatekju o.fl. í Elliðaey, súlu- og fýlatekju í Súlnaskeri og Hellisey o. fl.
Lárus kom mjög við sögu Eyjanna. Honum er svo lýst af Árna símritara, dóttursyni hans, að „Hann var góður bóndi og vel stæður, smiður ágætur á skip og hús, formaður heppinn og fiskisæll, mikill umbótamaður á opinberum vettvangi, hafnsögumaður og hreppstjóri. Kunnastur sem formaður með skipin „Enok” (t.d. í útilegunni miklu 1869) og mörg ár með „Frið”. Þá var Lárus kunnur lundaveiðimaður, bæði í holu og með háf, og einn af þeim, er komu austan úr Mýrdal til fuglaveiða hér 1857-1860. Veiddi hann 17-32 kippur árlega frá byrjun lundaveiða til sláttarbyrjunar......”. Lárus drukknaði á skipinu „Hannibal” í innsiglingunni 9. febr. 1895.
Þá var kveðið:

Hreppstjóri Lárus nú sefur í sæ
þó sjáist ei grafreitar merki,
en lítum við skipin og lítum hans bæ
þá lítum við handanna verkin.
Nú horfinn er snillingur, hnípin er sveit,
því Heimaey grætur þann öðling um aldir.

Fjölskylda

Kona hans (2. október 1862) var Kristín Gísladóttir, f. 13. janúar 1843 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. desember 1921 á Vestri Búastöðum í Eyjum.
Börn þeirra Kristínar voru:

  1. Ólöf húsfreyja á Kirkjubóli, f. 19. desember 1862 í Pétursey í Mýrdal, d. 16. nóvember 1944 í Eyjum, gift Guðjóni Björnssyni.
  2. Gísli gullsmiður í Stakkagerði, f. 16. febrúar 1865 í Kornhól, d. 27. september 1935, kvæntur Jóhönnu Sigríði Árnadóttur, Diðrikssonar.
  3. Jóhanna húsfreyja á Grund í Eyjum, f. 23. september 1868 í Kornhól, d. 8. desember 1953, gift Árna Árnasyni.
  4. Steinvör húsfreyja, f. 12. júlí 1866 í Kornhól, d. um 1940 í Blaine í Washington-fylki í Bandaríkjunum, gift Einari Bjarnasyni frá Dölum.
  5. Auðbjörg, f. 28. sept. 1871, d. 6. des. sama ár.
  6. Auðbjörg Jónína, f. 16. júlí 1873, d. 27. sept. sama ár.
  7. Jóhann Pétur á Búastöðum, f. 16. desember 1876, d. 18. október 1953, kvæntur Júlíönu Sigurðardóttur.
  8. Lárus Kristján, f. 19. okt. 1874, d. 17. febr. 1890.
  9. Jórunn Fríður húsfreyja í Stakkagerði, síðar á Hvassafelli, f. 17. apríl 1880, d. 7. október 1959, gift Sturlu Indriðasyni.
  10. Ingunn Katrín, f. 27. nóv. 1885, d. 17. febr. 1888.

Ættbogi í Eyjum

Móðurbróðir Lárusar var Ólafur Eiríksson, f. 1795, faðir Ólafs, f. 1828, föður Þorsteins í Háagarði, f. 16. okt. 1859, föður Guðleifar Helgu húsfreyju á Kirkjubæ, f. 22. sept.1898, konu Þorbjörns Guðjónssonar bónda ; einnig Ketill Eiríksson, f. 1798, ættfaðir Þórunnar Ketilsdóttur í Litlabæ (Tótu í Uppsölum), f. 1865, og Heiðu (Brynheiðar Ketilsdóttur) í Gerði, f. 1907; og Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810,- af henni Gísli Geirmundsson, f. 1874, faðir Guðlaugs Gíslasonar bæjarstjóra og alþingismanns.


Heimildir