Kristín Snorradóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. desember 2006 kl. 15:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. desember 2006 kl. 15:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Snorradóttir húsmóðir, ljósmóðir á Vilborgarstöðum fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu og lézt 26. febrúar 1855 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V-Skaftafellssýslu, f. 1695, Snorrasonar bónda á Maríubakka Björnssonar og kona Snorra í Fjósakoti, Guðbjörg, f. 1744, d. 12. maí 1785, Eyjólfs bónda og græðara á Kvískerjum í Öræfum og Ytri-Tungu í Landbroti í V-Skaftafellssýslu, Jónssonar og konu Eyjólfs, Sesselju Jónsdóttur.
Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur.

Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.

Maki (20. nóv. 1804): Guðmundur Jónsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á Vilborgarstöðum, f. þar um 1757, d. 4. apríl 1836.

Af börnum þeirra má telja:

  1. Eyjólfur, f. 8. des. 1805.
  2. Jón, f. 29. júní 1807, d. 5. júlí s. ár.
  3. Jón, f. 10. okt. 1808, d. 17. okt s. ár.
  4. Guðbjörg, f. 3. jan. 1810, d. 3. febr. s. ár.
  5. Þórdís, f. 8. okt. 1811, d. 20. okt. s. ár.
  6. Snorri, f. 6. febr. 1813 og
  7. Elísabet, f. 11. okt. 1815, d. 27. júní 1837.

Aðeins Eyjólfur og Elísabet eru hjá þeim 1816.


Heimildir

  • Upphaflegur höfundur var Víglundur Þór Þorsteinsson
  • Björn Magnússon: Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja . Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946. I. bls 149/89.