Kristín Snorradóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. október 2006 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. október 2006 kl. 17:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Snorradóttir húsmóðir, ljósmóðir á Vilborgarstöðum fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaft. og lézt 26. febr. 1855 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V-Skaft., f. 1695, Snorrasonar bónda á Maríubakka Björnssonar og kona Snorra í Fjósakoti, Guðbjörg, f. 1744, d. 12. maí 1785, Eyjólfs bónda og græðara á Kvískerjum í Öræfum og Ytri-Tungu í Landbroti í V-Skaft., Jónssonar og konu Eyjólfs, Sesselju Jónsdóttur.
Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur. Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.
Maki (20. nóv. 1804): Guðmundur Jónsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á Vilborgarstöðum, f. þar um 1757, d. 4. apríl 1836.
Af börnum þeirra má telja Eyjólf, f. 8. des. 1805; Jón, f. 29. júní 1807; Jón, f. 10. okt. 1808; Guðbjörg, f. 3. jan. 1810; Þórdís, f. 8. okt. 1811; Snorri, f. 6. febr. 1813 og Elísabet, f. 11. okt. 1815. Aðeins Eyjólfur og Elísabet eru hjá þeim 1816.

Heimildir:

  • Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja. Rvk 1946, I. 149/89.
  • Ljósmæður á Íslandi. Rvk 1984.
  • V-Skaftfellingar.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.