„Kristín Eiríksdóttir (Löndum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 23: Lína 23:
Börn þeirra hér:

Börn þeirra hér:

2. [[Einar Pálsson (Vilborgarstöðum)|Einar Pálsson]], f. 17. mars 1878 á Vilborgarstöðum, d. 22. maí 1928 í Spanish Fork.

2. [[Einar Pálsson (Vilborgarstöðum)|Einar Pálsson]], f. 17. mars 1878 á Vilborgarstöðum, d. 22. maí 1928 í Spanish Fork.

3. [[Árni Pálsson (Vilborgarstöðum)|Árni Pálsson]], f. 8. september 1879 á Kirkjubæ, d. 14. ágúst 1920 í Spanish Fork.

3. [[Árni Pálsson (Kirkjubæ)|Árni Pálsson]], f. 8. september 1879 á Kirkjubæ, d. 14. ágúst 1920 í Spanish Fork.

4. Pauline A. Johnson, f. 3. desember 1881 i Spanish Fork, d. 28. janúar 1965.

4. Pauline A. Johnson, f. 3. desember 1881 i Spanish Fork, d. 28. janúar 1965.

5. Margrét Johnson, f. 3. ágúst 1884 í Spanish Fork, d. 30. september 1885 í Spanish Fork.

5. Margrét Johnson, f. 3. ágúst 1884 í Spanish Fork, d. 30. september 1885 í Spanish Fork.

Útgáfa síðunnar 29. janúar 2016 kl. 22:06

Kristín Eiríksdóttir húsfreyja á Löndum, síðan í Spanish Fork í Utah, fæddist 3. desember 1842 í Lágu-Kotey í Meðallandi og lést 10. október 1934 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Runólfsson bóndi, síðast í Lágu-Kotey í Meðallandi, f. 1. júní 1798, d. 9. júní 1851, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1801, d. 18. febrúar 1888.

Systkini Kristínar í Eyjum voru:
1. Sæmundur Eiríksson í Fagurlyst, f. f. 1825.
2. Runólfur Eiríksson á Kirkjubæ, f. 1828.
3. Vigfús Eiríksson í Nýborg, f. 1843.
4. Einar Eiríksson á Löndum, f. 1847.

Kristín var með foreldrum sínum til ársins 1848.
Hún var send í fóstur til Eyja 6 ára 1848. Þar var hún á Vesturhúsum 1849 og enn 1855. Hún var vinnukona í Helgahjalli 1860 hjá Katrínu Eyjólfsdóttur frá Vesturhúsum.
Hún var vinnukona 1861 hjá Madama Roed og Carli Roed í Frydendal, og enn var hún þar 1869 við fæðingu Jóhanns Kristjáns Thomsens.
Við giftingu 1877 var hún vinnukona á Vilborgarstöðum. Þau Árni voru hjón á Kirkjubæ 1879 við fæðingu Árna, en voru komin að Löndum 1880.
Kristín fluttist frá Löndum til Utah 1881 með börnin Einar og Árna, en Páll fór Vestur 1882. Barn hennar Jóhann Kristján fór vestur 1880.
Þau bjuggu í Spanish Fork, en eignuðust dálitla bújörð.
Kristín lést 1934.

I. Barnsfaðir Kristínar var Nikolai Heinrich Thomsen verslunarmaður, f. um 1844.
Barn þeirra var
1. Jóhann Kristján Thomsen, f. 2. ágúst 1869, d. 28. ágúst 1939. Hann fór til Vesturheims frá Kirkjubæ 1880, 10 ára.

II. Maður Kristínar, (12. október 1877), var Páll Árnason frá Vilborgarstöðum, f. 22. febrúar 1852, d. 2. ágúst 1836 í Spanish Fork.
Börn þeirra hér:
2. Einar Pálsson, f. 17. mars 1878 á Vilborgarstöðum, d. 22. maí 1928 í Spanish Fork.
3. Árni Pálsson, f. 8. september 1879 á Kirkjubæ, d. 14. ágúst 1920 í Spanish Fork.
4. Pauline A. Johnson, f. 3. desember 1881 i Spanish Fork, d. 28. janúar 1965.
5. Margrét Johnson, f. 3. ágúst 1884 í Spanish Fork, d. 30. september 1885 í Spanish Fork.
6. Christina Johnson, f. 7. nóvember 1886 í Spanish Fork, d. 29. janúar 1888 í Spanish Fork.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• FamilySearch - Community Tree.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.
• Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
• Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.