Katrín Lovísa Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. nóvember 2005 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. nóvember 2005 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Lovísa Magnúsdóttir er fædd 29. mars 1944 að Ketilsstöðum, Hvammssveit í Dalasýslu. Hún lauk prófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni 1965 og almennu kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1966. Hóf kennslu við Barnaskólann í Vestmannaeyjum 1966 og hefur kennt við grunnskólana í Vestmannaeyjum síðan. Lauk réttinganámi í sérkennslu árið 2003 og hefur verið deildarstjóri sérkennslu í Hamarsskóla síðan þá.

Á yngri árum stundaði Katrín frjálsar íþróttir með góðum árangri, var m.a. methafi í HSK í stökkum. Hin síðari ár hefur hún stundað golfíþróttina með ágætum árangri, varð m.a. Íslandsmeistari öldunga í kvennaflokki með forgjöf árið 2004 og Vestmannaeyjameistari kvenna árið 2005.

Katrín giftist 1967 Sigurgeir Jónssyni kennara og eru börn þeirra fjögur: Jarl (1967) stýrimaður, Dís (1969) lögfræðingur, Hersir (1972) stærðfræðingur og Dögg Lára (1974) kennari.

Árið 1989 keyptu Katrín og Sigurgeir ritfanga og gjafavöruverslunina Oddinn við Strandveg og ráku hana til ársins 1989 þegar þau seldu hana.

Árið 2001 byggðu þau sér íbúðarhús fyrir ofan hraun og nefndu það Gvendarhús eftir samnefndu býli er þar stóð áður en fór undir flugbrautina þegar hún var lengd til vesturs.