„Kaplagjóta“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Þar var hestum áður varpað niður.
'''Kaplagjóta''' er um löng gjóta sunnan við [[Dalfjall]] sem gengur til austurs, samhliða Herjólfsdal. Gjótan dregur nafn sitt af því að á hestum var varpað þar niður til þess drepa þá, þar sem að ekki mátti borða hrossakjöt lengi á Íslandi, og reglur voru í gildi frá Noregskongungi um hversu margir hestar máttu vera í Vestmannaeyjum. Óskila færleikum var þá hrynt ofan í sjóinn forðum sem fundust fram yfir regluna, eða voru orðnir of gamlir til þess að koma að gagni. Annar staður á Heimaey var notaður til sama brúks, en það voru [[Kaplapyttir]] á [[Stórhöfði|Stórhöfða]].
Örnefnið er dregið af því að þar var óskila færleikum hrundið ofan í sjóinn forðum sem fundust fram yfir regluna. Þaðan eru til sögur af litlum dreng sem að gekk aftur.


'''Tíkartóa-draugurinn'''
== Tíkartóa-draugurinn ==


Í suðaustanverðu Dalfjalli, ofan við Kaplagjótu, eru grösugar hillur,sem nefndar hafa verið Tíkartær. Um langt skeið hafðist þar við afturganga sem menn urðu oft varir við.
Í suðaustanverðu Dalfjalli, ofan við Kaplagjótu, eru grösugar hillur, sem nefndar hafa verið [[Tíkartær]]. Um langt skeið hafðist þar við afturganga sem menn urðu oft varir við.
Tildrög að afturgöngu þessari voru þau, að einhverju sinni hafði burðarlítill piltur verið sendur út á fjall til lundaveiða. Fór hann nauðugur í þessa ferð en hart hafði verið að honum gengið.
Tildrög að afturgöngu þessari voru þau, að einhverju sinni hafði burðarlítill piltur verið sendur út á fjall til lundaveiða. Fór hann nauðugur í þessa ferð en hart hafði verið að honum gengið.
Hrapaði hann í Tíkartónum og gekk síðan aftur. Sást hann oft vera að steypa sér kollhnís fram af Tíkartónum ofan í Kaplagjótu en aldrei gerði hann neinum manni mein, af því er kunnugt sé.
Hrapaði hann í Tíkartónum og gekk síðan aftur. Sást hann oft vera að steypa sér kollhnís fram af Tíkartónum ofan í Kaplagjótu en aldrei gerði hann neinum manni mein, af því er kunnugt sé.


== Heimildir ==
* ''Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum''


Úr bókinni Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]

Útgáfa síðunnar 8. júní 2005 kl. 14:28

Kaplagjóta er um löng gjóta sunnan við Dalfjall sem gengur til austurs, samhliða Herjólfsdal. Gjótan dregur nafn sitt af því að á hestum var varpað þar niður til þess að drepa þá, þar sem að ekki mátti borða hrossakjöt lengi á Íslandi, og reglur voru í gildi frá Noregskongungi um hversu margir hestar máttu vera í Vestmannaeyjum. Óskila færleikum var þá hrynt ofan í sjóinn forðum sem fundust fram yfir regluna, eða voru orðnir of gamlir til þess að koma að gagni. Annar staður á Heimaey var notaður til sama brúks, en það voru Kaplapyttir á Stórhöfða.

Tíkartóa-draugurinn

Í suðaustanverðu Dalfjalli, ofan við Kaplagjótu, eru grösugar hillur, sem nefndar hafa verið Tíkartær. Um langt skeið hafðist þar við afturganga sem menn urðu oft varir við. Tildrög að afturgöngu þessari voru þau, að einhverju sinni hafði burðarlítill piltur verið sendur út á fjall til lundaveiða. Fór hann nauðugur í þessa ferð en hart hafði verið að honum gengið. Hrapaði hann í Tíkartónum og gekk síðan aftur. Sást hann oft vera að steypa sér kollhnís fram af Tíkartónum ofan í Kaplagjótu en aldrei gerði hann neinum manni mein, af því er kunnugt sé.

Heimildir

  • Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum