„Kanínur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
 
'''Kanínur''' bárust líklegast til [[Heimaey|Heimaeyjar]] sem gæludýr. Sveiflur eru í stofninum en talið er að í honum séu sum 2000 dýr. Mikill fjöldi hafði komið sér fyrir austan í Sæfelli en var fækkað af meindýraeyði árið 2000. Útbreiðsla kanínu er víða s.s. í Nýjahrauni, á Haugum, allt í kringum Lyngfell og niður að fjöru í Víkinni og upp með Ofanleitishamri sem og um móa við flugvöllinn. Kanínurnar eru grasætur og lifa á gróðrinum á eyjunni. Þær brýna tennur sínar á trjám með því að naga hringinn í kring um stofinn og drepa þannig tréð. Af þessum sökum er kanínan mikill skaðvaldur á Heimaey þar sem hún skemmir nýrækt og uppgræðslusvæði. Kanínan er einnig meinvaldur gangvart öðrum lífverum og má þá nefna lundann en kanínur taka sér bólfestu í lundabyggð og hindrar þannig aðgang lundans að henni. Í lundabyggðunum nagar hún einnig grasrætur sem hanga inni í holunum og eldur
þannig skemmdum á gróðri. Dæmi um lundabyggð sem hefur orðið fyrir slíkum skakkaföllum er byggðin austan í Sæfelli.

Útgáfa síðunnar 5. júlí 2005 kl. 11:52

Kanínur bárust líklegast til Heimaeyjar sem gæludýr. Sveiflur eru í stofninum en talið er að í honum séu sum 2000 dýr. Mikill fjöldi hafði komið sér fyrir austan í Sæfelli en var fækkað af meindýraeyði árið 2000. Útbreiðsla kanínu er víða s.s. í Nýjahrauni, á Haugum, allt í kringum Lyngfell og niður að fjöru í Víkinni og upp með Ofanleitishamri sem og um móa við flugvöllinn. Kanínurnar eru grasætur og lifa á gróðrinum á eyjunni. Þær brýna tennur sínar á trjám með því að naga hringinn í kring um stofinn og drepa þannig tréð. Af þessum sökum er kanínan mikill skaðvaldur á Heimaey þar sem hún skemmir nýrækt og uppgræðslusvæði. Kanínan er einnig meinvaldur gangvart öðrum lífverum og má þá nefna lundann en kanínur taka sér bólfestu í lundabyggð og hindrar þannig aðgang lundans að henni. Í lundabyggðunum nagar hún einnig grasrætur sem hanga inni í holunum og eldur þannig skemmdum á gróðri. Dæmi um lundabyggð sem hefur orðið fyrir slíkum skakkaföllum er byggðin austan í Sæfelli.