Jes A. Gíslason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Séra Jes A. Gíslason var fæddur 28. maí 1872 og lést 7. febrúar 1961. Foreldrar hans voru Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi og Soffía Lisbeth Andersdóttir.

Jes A. Gíslason
Ágústa Eymundsdóttir og Jes A. Gíslason við Hól

Hann var 9 ára er hann hóf nám í Barnaskóla Vestmannaeyja og yngstur nemenda í fyrsta árgangi skólans. Þrátt fyrir að vera yngstur var hann með hæstu einkunn ásamt bróður sínum, Friðriki. Hann var albróðir Friðriks Gíslasonar frá Hlíðarhúsi.

Kona Jes var Kristiana Ágústa Eymundsdóttir. Á meðal barna þeirra voru Friðrik og Anna.

Jes var bókasafnsvörður á árunum 1942–1949, auk þess að vera kennari og prestur.

Myndir



Heimildir