„Jakob Magnússon (Dölum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jakob Magnússon''' frá Kvíhólma u. Eyjafjöllum, vinnumaður í Dölum, fæddist 1839 og hrapaði úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.<br> Foreldrar han...)
 
m (Verndaði „Jakob Magnússon (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 11. mars 2015 kl. 21:30

Jakob Magnússon frá Kvíhólma u. Eyjafjöllum, vinnumaður í Dölum, fæddist 1839 og hrapaði úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.
Foreldrar hans voru Magnús Sigmundsson vinnumaður, síðar á Oddsstöðum f. 1810, drukknaði 18. nóvember 1842 og barnsmóðir hans Helga Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja á Kvíhólma og í Ystabæliskoti, f. 1815, d. 21. september 1887.

Jakob var með móður sinni á Kvíhólma 1840 og 1845, niðursetningur í Ystabæli 1850.
Hann kom til Eyja frá Leirum u. Fjöllunum 1855, ráðinn vinnupiltur að Dölum.
Hann hrapaði til bana úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.


Heimildir